mánudagur, apríl 23, 2007

Í kvöldmat hjá vinum Beatsons

Á fimmtudaginn var ég í Glasgow til að hitta fulltrúa Scottish Co-Investment fund í húsakynnum LINC. Sá fundur var mjög jákvæður því niðurstaðan er sú að ég telst í framhaldinu viðurkenndur fjárfestir af sjóðnum.

Um kvöldið átti ég boð á góðgerðakvöldverð í boði Robert Burns hjá McRoberts lögfræðistofunni ásamt Stephen frá Metis. Þetta var flott samkoma og allir í smóking eða Skotapilsi. Það var ágætis matur og þrír mjög góðir ræðumenn sem voru fyndnir svo ekki sé meira sagt. Sá fyrsti var fyrrum landsliðsmaður í Rugby, sá næsti var með eftirhermur og þríðji með standup grín. Síðan voru boðnir upp hinir ýmsu hlutir, áritaðar treyjur, miðar á leiki og golf. Undirtektir voru góðar og söfnuðust tæplega 70 þúsund pund sem er liðlega 10 milljónir. Allur ágóði af samkomunni rann til “Friends of Beatsons” sem er félagsskapur sem styður krabbameinssjúka

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home