Tíunda maraþonið.

Ég fór á föstudeginum til London að hitta Sigrúnu sem ætlaði að hlaupa í Lundúnamaraþoninu. Ég var skráður, en vegna gigtar og annarar óáran, þá ætlaði ég bara að horfa á. Ég ákvað síðan að setja á mig númerið og sjá hvað ég kæmist. Ég náði að skokka með Sigrúnu að 17 km en varð þá að byrja að ganga og varð þetta maraþon því göngumaraþon sem tók mig sex tíma, en ég kláraði samt og fékk því 10. maraþonið í bækurnar. Það er samt alveg klárt að ég ætla ekki að gera þetta aftur svona, alltof þungur og æfingalaus. 
Sigrún náði að skokka allan tímann og var á 5:12. Til hamingju Sigrún með enn eitt vel útfært maraþon. Sigrún hljóp til styrktar Ljósinu og safnaði áheitum.

Sigrún náði að skokka allan tímann og var á 5:12. Til hamingju Sigrún með enn eitt vel útfært maraþon. Sigrún hljóp til styrktar Ljósinu og safnaði áheitum.


1 Comments:
Til hamingju mamma og pabbi. Flott hja ter ad taka tatt og klara!!!
knus,
Anna C
Skrifa ummæli
<< Home