laugardagur, maí 05, 2007

Haldið til Haarlem

Ég flaug til Amsterdam á miðvikudag. Ferðinni var heitið til Haarlem til að taka þátt í ráðstefnunni ICCongress 2007. Ég fékk uppfærslu og svaf mestalla leiðina. Ég var með nýju töskuna sem Sigrún gaf mér í afmælisgjöf. Þar með var rythminn minn við lendingu ekki sá sami og ég gleymdi að setja fínu heyrnartólin mín í töskuna og gleymdi þeim í vélinni. Ég tók ekkert eftir því og var hissa þegar Sigrún sendi mér SMS um að ég hefði gleymt þeim og þau væru hjá Lögreglunni í Leifsstöð. Það var léttir en mér fannst ég óttalegur auli að hafa ekki tekið eftir þessu.

Ég tók leigubíl út í Haarlem og þegar leigubílstjórinn komst ekki í götuna þar sem hótelið var, ákvað ég að ganga síðasta spölinn. Það var heldur lengra en ég hélt svo ég endaði í hringsóli rétt hjá dómkirkju staðarins en hótelið var hjá kirkjunni. Ég rambaði að lokum á réttan stað og þegar ég var búinn að reyna að tékka inn, gengu Rob McLean og Pat Sullivan inn í lobbýið. Þar sem ekki var hægt að fá herbergið fyrr en klukkutíma síðar, þá gengum við í bæinn og fengum okkur hádegimat og spjölluðum um heima og geima. Sérstaklega fannst mér athyglisverð tilraun þeirra til að búa til alþjóðlegt samfélag á netinu um hagnýtingu þekkingarverðmæta, sérstaklega einkaleyfa, eins konar alþjóðlega útgáfu af the Gathering, þ.e. G2.0. Eftir að hafa fengið herbergin okkar, fórum við í InHolland háskólann þar sem var móttaka og þar hitti ég nokkra til viðbótar sem ég þekki og nú bættist við Alan Willis í hópinn, en hann hefur komið að staðlamálum hjá alþjóðlegu endurskoðendasamtökunum og hafði Rob fengið hann til að koma. Eftir móttökuna fórum á steikhús rétt hjá hótelinu þar með var dagurinn búinn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home