þriðjudagur, júní 12, 2007

Hvað haldiði ???

Ég kláraði ritgerðina í dag (mánudag) og fór með í innbindingu og sendi Pat hana á morgun. Vonandi líst honum nógu vel á gripinn til að hann leyfi mér að senda hana inn til Henley. Þá fer ég í bið eftir varnardegi, en allavega myndi þá ferillinn halda af stað og þessum Groundhog Day ljúka.

Hitt sem er einnig merkilegt er að það mætti grafa á ónefnda lóð í Breiðholtinu og byrjaði að grafa. Sem sagt allt á fullu og við Sigrún á leið til Alicante á miðvikudag að skoða hús.

2 Comments:

At þriðjudagur, 12 júní, 2007, Blogger Anna C said...

Til hamingju með gröftinn ;) Hlakka til að sjá nýja húsið þegar það er í fullum skrúða.

Flott hjá þér, til hamingju með áfangann að vera búinn með þetta.

Takk fyrir hjálpina í gær, en ég hélt ég ætli að gera spurningarnar. Geri það í dag og les svo yfir á morgun, fyrir bæði sögu og hitt.

Knús frá Vín,
Anna C

 
At laugardagur, 16 júní, 2007, Blogger Dis said...

Til hamingju með ritgerðina og gröftinn

 

Skrifa ummæli

<< Home