Endaspretturinn ???
Hvað haldið þið? Ég var að tala við Pat áðan og hann fór yfir athugasemdirnar sínar og sagði síðan að ég ætti að klára lokaútgáfu og senda sér sem fyrst svo ég gæti skilað. Hann er sumsé hættur að koma með fleiri athugasemdir og vill núna sjá lokaútgáfu ritgerðarinnar til að geta hakað við og þá fer ég í næsta feril, sem er að fá dag fyrir vörnina. Ég er óttalega spenntur og sit hér sveittur við að sópa upp síðustu athugasemdirnar áður en ég fer að klára að fara yfir málfar og uppsetningu. Vonandi tekst mér að klára þetta á þeim 10 dögum sem ég sagðist þurfa til verksins. Spennandi !!!


2 Comments:
Æðislegt að heyra!!!
gangi þér vel
Takk Anna mín. Nú fer þetta að verða spennandi.
Skrifa ummæli
<< Home