Anna skrifar í Moggann

Ásta systir hringdi í mig í gærkvöldi og sagði að það væri grein eftir Önnu í sunnudagsblaði Moggans. Ég hafði ekki hugmynd um þetta og þar sem ég er með netáskrift hafði ég ekki aðgang að blaðinu fyrr en núna í morgun. Við Sigrún vorum hjá Kjartani og Gógó, en þau eru áskrifendur og gátum séð blaðið þar. Anna hefur verið dugleg að skrifa í skólablaðið sitt í Vín en ég man ekki eftir að hafa séð neitt eftir hana í Mogganum. Flott hjá þér Anna mín.


1 Comments:
ÆÐI... takk fyrir að láta mig vita. Ég sendi greinina inn í fljótu bragði og lét ykkur ekki vita þar sem ég bjóst ekki við að þau myndu birta hana, smá stafsetningarvillur og ein villa en annars er ég ánægð með hana
Gaman að komast í Moggann :)
Bið að heilsa öllum heima
Skrifa ummæli
<< Home