laugardagur, maí 05, 2007

Góðir gestgjafar

Ég valdi sama hótel í Amsterdam og við höfum verið á áður og því var stutt ganga frá lestarstöðinni. Skömmu eftir að ég tékkaði mig inn, þá voru Godfried og Inge mætt til að bjóða mér út að borða á veitingastað í göngufæri frá hótelinu. Þetta voru allt smáréttir, borðaðir með prjónum, en samt ekki austrænir að öllu leyti, og voru þeir góðir. Við spjölluðum um heima og geima og gaman að heyra hvað gengur vel hjá Godfried, en hann hefur verið lykilmaður í hönnun á peningaskáp fyrir smásöluverslanir og er að selja helling til Esso. Það eina sem honum gremst er að doktorsnámið hefur orðið útundan. Þau hjón ætla að koma til Íslands fyrsta sept. þegar DBA liðið ætlar að hittast og ætla að vera aukadaga sem ég heimtaði að skipuleggja fyrir þau. Það verður gaman að endurgjalda þeim greiðann. Það var minningardagur þennan föstudag, þ.e.a. Hollendingar minnast þeirra sem létust í seinna stríði með minningarathöfn og tveggja mínútna þögn. Godfried var búinn að vara mig við að þau hjónin virtu alltaf þennan sið og því yrðum við að þegja í tvær mínútur kl. 20:00. Við vorum greinilega þau einu á veitingahúsinu sem virtum þennan sið svo þetta varð ekkert pínlegt þó við þegðum þessar mínútur. Þau sögðu mér síðan að það hefði oft verið við hinar ýmsu aðstæður sem þau hefðu viðhaft þennan sig og ýmislegt komið uppá. Eftir matinn gengum við út á Damtorgið þar sem við sáum í restina af heiðursvörðunum og lögðum blóm, sem okkur voru gefin, að minnismerkinu. Við gengum síðan að hótelinu mínu og fundum bar rétt hjá þar sem við tókum hestaskálina og kvöddumst. Annars var dagskráin fyrir laugardaginn að sitja á hótelherberginu við klasagreiningu og síðan halda heim á sunnudag.

1 Comments:

At sunnudagur, 06 maí, 2007, Blogger Anna C said...

falleg athöfn og gott hja þeim að halda í þennan sið.

 

Skrifa ummæli

<< Home