Misgóðir tónleikar
Ég notaði afmælisgjöfina mína í gær, en það voru miðar á tónleika Uriah Heep og Deep Purple í Höllinni. Þar sem Sigrún gaf mér miðana með því skilyrði að hún þyrfti ekki að fara, þá bauð ég Gissuri, fyrrum vinnufélaga mínum, með mér. Ég fór í upphitunarpartí til Kalla bróður hans, sem ég þekki ágætlega, og þar var unnið þétt með plötur og DVD diska til að koma á réttu stemmingunni. Ég hafði með mér DVD með Heep, sem enginn hafði séð svo það var ágætis framlag.
Tónleikarnir hófust með því að Uriah Heep spilaði í klukkutíma og var hin besta skemmtun. Þeir voru í essinu sínu og þar sem þeir höfðu bara klukkutíma, þá héldu þeir sig við efnið og reyndu að koma sem mestu til skila. Stóðu sig hreint frábærlega.
Vonbrigðin komu svo með Gillian og Purple. Hljóðkerfið var þanið til hins ýtrasta svo þetta meiddi í eyrum og þetta var einn hávaðaveggur þar sem Gillian öskraði eina öskrið sem hann á eftir í raddböndunum og síðan endalaus sóló svo hann gæti farið í var. Ég var að geta mér þess til að hann þyrfti súrefni eftir hverja laglínu, svo vonlaus var hann. Þó tók steininn úr þegar nýi gítarleikarinn sýndi fingrafimi sína með því að taka riff frá öðrum hljómsveitum eins og Zeppelin, Guns & Roses osfrv. í stað þess að nýta sér þá staðreynd að hann er í hljómsveit sem er 40 ára og á örugglega nóg af riffum til að halda út í nokkrar mínútur :-(
Þegar þessar hljómsveitir koma næst, vona ég að Heep fái tvo tíma og Purple einn. Það væri sanngjarnt.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home