sunnudagur, maí 27, 2007

Groundhog Day


Þessi kvikmynd er í miklu uppáhaldi hjá mér. Það eru nokkrar Bill Murray myndir sem ég hef dálæti á og þessi framarlega í þeim flokki. Fyrir þá sem ekki þekkja þá gengur söguþráðurinn út á að veðurfréttamaður nokkur sem er mættur til Puxatawny til að segja frá, festist í sama deginum, þ.e. hann upplifir alltaf sama daginn aftur, sama hvað hann gerir.

Það er að renna upp fyrir mér að ég er búinn að vera í þessu sama hlutverki í einar 12 vikur því ég er allan þennan tíma búinn að eiga tvær vikur eftir af ritgerðinni minni. Ég hamast við að skrifa á hverjum degi, eða hamast við að gera eitthvað annað með stífri fundasetu og alls konar truflunum. Ég get samt ekki kvartað yfir truflunum heima því Stefán er í Álaborg að keppa og Sigrún er á stangveiðum í freðmýrum Rússlands án símasambands!!! Mér ætti því ekki að vera skotaskuld að klára. Reyndar samdi ég 11 síður með umræðu sem Pat hafði kallað eftir og fyrstu viðbrögð hans voru nokkuð jákvæð en ég á ennþá eftir að umbreyta fimmta og síðasta kaflanum.

En niðurstaðan alltaf sú sama. Ég á tvær vikur eftir í ritgerðinni minni.

3 Comments:

At sunnudagur, 27 maí, 2007, Blogger Anna C said...

hehhe, skemmtileg líking.

Gangi þér vel með ritgerðina :)

 
At sunnudagur, 27 maí, 2007, Anonymous Nafnlaus said...

Ég veit ekki hvað það er langt síðan ég kvaðst vera á síðustu viku skrifta. En ég man eftir að hafa hlegið að einhverjum sem spurði hvort ég yrði búinn með þetta fyrir júní.

 
At mánudagur, 28 maí, 2007, Blogger EggertC said...

Takk Anna mín, ekki veitir af.

Já, þetta er hreint ótrúleg staða að vera í. Vonandi náum við að brjóta þessi álög eins og í myndinni Helgi minn. Ég að klára ritgerðina og þú að ná stelpunni :-)

 

Skrifa ummæli

<< Home