Þekkti röddina !!!
Ég fór oftar sem áður til Glasgow á þriðjudag. Þetta var eins og hópferð því ég þekkti nokkra í fluginu, þ.á.m. Jóa endurskoðandann minn og Gunnar Pál félaga hans, en þeir voru á leiðinni í golfferð eins og Tryggvi Pálsson í Seðlabankanum en hann var fyrir framan mig á Saga Class og spjölluðum við saman, sem og Jim hennar Birnu Einars, sem var á heimleið til Edinborgar. Þegar ég er að ganga út úr vélinni finnst mér ungur maður sem sat á almenna farrýminu rétt fyrir aftan mig eitthvað líta sérstaklega til mín en gaf því ekki gaum. Ég gekk inn í flugstöðina talandi við Tryggva og þegar leiðir okkar skildu við töskubandið og ég ætla að halda áfram, því ég var bara með handfarangur, þá er ungi maðurinn kominn á ný og segir: Ertu ekki Eggert? Jú ekki vildi ég neita því og spurði hann að nafni. Þetta var þá Guðbjartur frændi minn, sonur Kristrúnar og Einars. Ég gat ekki orða bundist yfir því hvað hann væri glöggur að þekkja mig því ég hefði aldrei þekkt hann. Þá sagði hann þessi fleygu orð “Ég þekkti þig ekki, heldur þekkti ég röddina”
Þar sem hann var heldur ekki með farangur spurði ég hann hvort hann væri á leiðinni niður í bæ og var hann þá á leiðinni á George Square, þar sem hótelið mitt var í þetta skiptið svo ég bauð honum far. Við spjölluðum saman og kom í ljós að hann var að fara að horfa á UEFA bikarleikinn ásamt Óla bróður sínum og einum til. Vinur þeirra var ekki væntanlegur næstu tvo tímana svo ég bauð honum með mér á 29 klúbbinn, sem ég var að gerast meðlimur í og fórum við því á skrifstofuna hjá Metis að sækja kortið mitt og héldum síðan niður í bæ. Við settumst að á 29, fengum okkur að borða og spjölluðum um heima og geima. Var gaman að spjalla við hann.


1 Comments:
En áhugavert að spjalla við frændann, skemmtileg tilviljun að hitta hann.
Skrifa ummæli
<< Home