Í atvinnuviðtali
Erindið til Glasgow var að mæta í atvinnuviðtal. Ég segi þessa sögu til þess að geta verið honum Helga frænda mínum fyrirmynd og uppörvun, en við erum báðir að ljúka við skriftir þessa dagana. Málið var að þegar ég var í Glasgow síðast þá sá ég fyrir tilviljun auglýsingu frá Skosku Þekkingarverðmætamiðstöðinni (SIAC) þar sem þeir voru að ráða í stöðu stjórnarformanns. Þar sem ég taldi mig hafa það til að bera sem auglýst var eftir, ákvað ég að láta slag standa, því ég hef haft töluvert samand við stofnuna síðustu þrjú árin. Ég var svo sem viss um að ég yrði ekki ráðinn, og er ekki enn, því ég á fastlega von á því að það verði Skoti fyrir valinu. Engu að síður hef ég heyrt í farvatninu að það hafi á milli tíu og fimmtán manns sótt um og það hafi fimm verið shortlistaðir, þannig að það var heiður að komast í gegnum niðurskurðinn. Ég var því mættur á slaginu tvö og í viðtalinu voru tveir stjórnarmenn auk eftirlitsmanns frá SE sem er stjórnvaldið í Skotlandi. Ég hafði svo sem hitt þessa menn áður þó ég hefði ekki talað við þá sérstaklega og ég notaði tímann til að selja þeim þá hugmynd sem ég hef um starfsemi sem þessa. Þetta varð klukkutímaspjall og sögðu þeir mér í restina að ég væri alvöru kandidat en það tæki þá þrjár vikur í viðbót að vinna úr þessu. Þess vegna bíð ég spenntur (not)


2 Comments:
Já þakka þér fyrir söguna, það yljaði hjarta mínu að vita til þessa að maður er ekki einn um að reyna að selja sig ;-)
Maður reynir að standa sig í baráttunni. Ég vona að þér gangi vel í atvinnuleitinni.
Skrifa ummæli
<< Home