Sveitin og smekkvísin

Ég var í fimmtugsafmæli Þórdísar vinkonu okkar Sigrúnar á föstudag. Danshópurinn var með uppákomu sem byggði á hugmynd um að bjóða afmælisbarninu í siglingu og var byggt skip úr pappa og ég samdi að mestu nýja texta við nokkur lög. Ég talaði einnig til afmælisbarnsins og afhenti henni síðan listaverk sem ég lét útbúa og kallaði ég það sveitina og smekkvísina. Annars sagði ég eftirfarandi:
"Þegar ég horfi á þig svona fallega og fína, þá finnst mér frekar sem ég sé kominn í fertugsafmælið þitt aftur, og ég man það gjörla að ég gat ekkert frekar þagað þá en í dag. Þá var ég meira að segja svo metnaðarfullur að ég talaði til þín í bundnu máli, en í kvöld tala ég óbundinn nema ég rifji eitthvað upp af gamla textanum, því endurvinnsla er í tísku í dag.
Það vita kannski ekki allir að ég skipa sérstakan sess hjá þér, því oftar en ekki þegar ég segi eitthvað eða geri, þá segir þú: “Þú ert ekki í lagi” og það sem meira er, þá ertu mjög næm fyrir öllum aðstæðum mínum, því að þú segir líka: “Er ekki í lagi heima hjá þér”. Svona ertu nú skilningsrík.
Þess vegna langar mig að færa þér sérstaka gjöf á þessum tímamótum, en ég verð að segja að það var erfitt að finna gjöf, sem var nógu sérstök. Ég leit fyrst til uppruna þíns, en fyrir áratug orðaði ég það svo:
Um æsku þína og yndi,
ég ósköp lítið veit,
hvort þig í bænum fyndi,
eða hvort þú varst úr sveit.
Og kom þá í ljós að þú varst úr sveit, að norðan. Þetta kom mér á óvart því þú hefur alltaf verið allt annað en sveitó í mínum huga. Við vorum t.d. að rifja það upp að í útilegunum okkar, þá varstu tilhöfð með varalit á meðan aðrir náðu vart að dusta af sér stráin. Síðan hugsaði ég til þess hvað þú hefur verið mikil tískuverslunarkona og nokkurs konar tískulögga, svo öflug, að meira að segja Sigrún konan mín notar það á mig þegar ég er að klæða mig í eitthvað sem henni hugnast ekki. Ég er t.d. ekki viss um að Eyjólfur væri yfirleitt í fötum ef þú værir ekki til að segja honum til. Það er einmitt þessi tískuáhugi og smekkvísi sem ég vildi koma að á einhvern hátt.
Ég vil þó, áður en ég kalla þig hingað til mín til að taka við gjöfinni, fá að segja þér hvað mér þykir vænt um þig og vináttu þína og fá að endurtaka það sem ég sagði við sama tækifæri fyrir áratug:
Hér við glaum og gaman,
ég enda þetta ljóð,
sem hnoðaði ég saman,
úr minninganna sjóð.
Ég bið þér gæfu og gengi,
og gleði í þína sál,
með ósk að þú lifir lengi.
Ég lyfti þína skál.
Ég vil biðja þig að koma hérna til mín og taka við þessari sérstöku gjöf. Þetta er listaverk sem kallast “Sveitin og smekkvísin”. Það er byggt á eigin hugmynd en listræn útfærsla er verk Kristins Sigurðssonar gullsmiðs í Tímadjásni, félaga okkar. Það á að minna þig á uppruna þinn og um leið að vera táknrænt fyrir smekkvísi þína. Ég verð samt að taka fram að þegar ég sagði Sigrúnu, konu minni, hvað ég hefði keypt, þá sagði hún akkúrat það sama þú hefur svo oft sagt mér: “Þú ert ekki í lagi”, þannig að þá vissi ég um leið að ég hefði hitt rétt á. Til hamingju Þórdís mín, og njóttu vel".

1 Comments:
Snilld.. ég vona að vinir mínir geri e-h svona flott fyrir mín stórafmæli í framtíðinni
Skrifa ummæli
<< Home