Látum Gærur laxera !!!

Þessi frómi texti úr Stuðmannamyndinni kom upp í hugann þegar ég var að undirbúa mig í gær fyrir sneiðmyndatökuna í morgun. Kl. 8:00 og kl. 14:00 drakk ég 200ml af laxerandi með tilheyrandi viðbrögðum. Ég var þess vegna varkár í að bóka fundi í gær og hitti aðeins Caroline fyrir hádegi og Stephen seinni partinn því ég þekki þau það vel að ég gat útskýrt fyrir þeim aðstæður mínar. Stephen var mjög hissa fyrst þegar ég neitaði blákalt að hitta hann á skrifstofunni heldur vildi ég hitta hann á 29. Þegar ég útskýrði málið skildi hann vel að ég var ekki tilbúinn að taka áhættu á að ferðast með leigubíl eitt eða neitt í þessu ástandi. Klósettferðunum lauk svo rétt eftir níu í gærkvöldi og ég svaf vel.
Í morgun hitti ég Snorra hjá EJS áður en ég fór í myndatökuna. Myndatakan sjálf gekk mjög vel. Reyndar hélt ég að ég þyrfti ekkert að gera annað en brosa í sneiðmyndinni, en þar sem þetta var líka ristilmyndataka, þá var þetta laxeringarmál, það þurfti að dæla lofti í afturendann til að blása ristilinn upp og það var sprautað einhverju í æðina á mér til að slaka enn frekar á ristlinum. Ekki beint það þægilegasta, en gekk samt vel. Ég þarf síðan að bíða eftir skýrslu læknis sem túlkar myndirnar, en ég fékk að líta á þær í tölvunni hjá myndatökumanninum. Það var skondið að líta svona inn í sig. Það sem ég gat þó séð strax sjálfur er að ég er með nýrnastein í hægra nýra, sem mér þótti merkilegt því þeir tveir steinar sem ég hef fengið hingað til voru vinstra megin. Vonandi verður ekki meira úr þessu. Það verður spennandi að lesa skýrsluna.

Til að koma í veg fyrir hysteríu þá vil ég taka fram að ég fór í þessa myndatöku í forvarnarskyni. Mér vitanlega er ekkert að !!!

1 Comments:
Mér brá þar til ég las endann.. ótrúlegt hvernig þú getur bloggað um e-h svona sem er óþægilegt að tala um .. en gerðir það snilldarlega með tilvitnunni í stuðmannalagið!!!
Farðu vel með þig
Knús frá Vín,
Anna
Skrifa ummæli
<< Home