Fimmtánda ferðin
Það er búið að vera svo gott veður undanfarna daga að ég hef lítið haft áhuga á bloggi, heldur einbeitt mér að því að hlaupa og æfa golf. Þegar ský dró fyrir sólu að nýju, þá fór ég að huga að ýmsum hlutum, þ.á.m. ferðadögum mínum á árinu, því mér hefur fundist ferðagleði mín meiri en oft áður. Í síðustu viku skrapp ég í sólarhring til Glasgow. Erindið var að vera með innlegg á svokölluðum “Masterclass” í þekkingarverðmætaverkefninu sem Metis menn eru að stýra með SIAC. Þegar ég kom, byrjaði ég reyndar hjá endurskoðendafyrirtækinu Johnston og Michael, þar sem ég sýndi passann minn og orkureikninginn þar sem ég er stjórnarmaður í Amivox, en þetta er vegna strangrar löggjafar í Bretlandi um peningaþvætti. Ég hef mikið þurft að gera þetta þar sem ég er að verða kominn í stjórn fjögurra fyrirtækja þarna. Næst var fundur með Andreu og Callum hjá Skoska meðfjárfestasjóðnum þar sem ræða átti vandræði mín og Formedix manna að koma saman samningi sem væri sjóðnum þóknanlegur. Ég var svo heppinn að David Grahame frá LINC kom líka og var mér til stuðnings. Fundurinn gekk vel fullur skilningur á málinu, en það breytti því ekki að lögfræðingar sjóðsins komu með enn eina útgáfuna af skjalinu nokkrum dögum síðar. Þá fór ég í Apple búðina í Glasgow og náði í tölvu fyrir Önnu svo hún geti sinnt margmiðlunarverkefnunum sínum í vetur í Vín. Það kom hagstæðast út að kaupa vélina þarna. Búðin var í göngufæri við miðbæinn og þar sem það var hiti og sólskin ákvað ég að fá mér hálftíma göngutúr í góða veðrinu. Ég gisti á Carlton George þar sem ég er búinn að semja um fast verð og þaðan er stutt niður á 29 klúbbinn þar sem ég er meðlimur og vinnufundurinn var. Ég lagði mig aðeins og síðan hófst vinnufundurinn kl. 18 og stóð til 21. Það mættu aðeins fulltrúar 12 af 20 fyrirtækjum svo mér fannst þetta full óformlegt. Iain Russell frá SIAC var með mér í þessu og þetta varð meira svona spjall. Iain sagði mér reyndar óformlega að líklega yrði ég valinn í stjórn SIAC í haust, en það kemur í ljós. Þar sem Mark frá Formedix er með í verkefninu var hann á staðnum svo við gátum notað tímann til þess að spjalla. Svo var það beint í bólið og út á flugvöll morguninn eftir og kominn heim rétt eftir hádegi þar sem ég fór beint í jarðarför til að fylgja Birni Guðmundssyni, góðum frímúrarabróður og síðan í fertugsafmæli Rögnvalds í hlaupahópnum en hann býr á sambýli þroskaheftra úti á Nesi. Nóg að gera og það sem meira er, að þetta var fimmtánda ferðin mín til útlanda á árinu. það stefnir í enn eitt metið.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home