þriðjudagur, júlí 10, 2007

Kominn til Glasgow

Það var ekki langt stoppið heima því ég lenti í gærmorgun (mánudag) og var lagður af stað til Glasgow í morgun. Erindið er að vinna með Amivox í dag í Hillington nýsköpunarmiðstöðinni og síðan er það stjórnarfundur hjá EJS UK á morgun, auk þess sem það er formlegur fundur með starfsmanni sem gerir kröfur á hendur fyrirtækinu vegna miska (grievance) vegna vinnuálags og er þetta partur af vinnulöggjöfinni í Skotlandi sem er alveg fáránleg á köflum. Mér til lítillar gleði er mér ætlað hlutverk ritara á þeim fundi. Loks ætla ég að hitta Stephen hjá Metis og ræða hvers konar fyrirlestur hann vill að ég sé með á vinnufundi í Skoska hugbúnaðarverkefninu sem er 24. júlí. Síðan er það heim aftur þangað til ég er með fyrirlesturinn.

Það var skrýtið að ganga í gegnum flugstöðina í Glasgow í morgun þar sem hún var heldur betur í heimsfréttunum þegar logandi jeppa var ekið á hana. Skotarnir voru búnir að laga vel til en það mátti ennþá finna reykjarlykt í anddyrinu. Það er búið að verja aðkeyrsluna að flugstöðinni með alls konar steypuklumpum og öðrum fyrirstöðum svo það er ljóst að þeir ætla ekki að lenda í því sama aftur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home