Hörku dagur
Miðvikudagurinn var meiri dagurinn. Ég byrjaði á því að keyra Sigrúnu í Orkuhúsið þar sem hún fór í axlaraðgerð. Að ég best veit gekk vel, en hún var ansi lasin frameftir kvöldi. Ég fór síðan að ganga frá útprentuninni á ritgerðinni minni því í dag var stóri dagurinn, því ég skilaði öllu af mér til skólans. Ég hringdi í Veronicu til þess að vera viss um að allt væri til staðar en þá kom í ljós að ég átti að skila líka þremur eintökum af tveimur greinum, kallað working paper. Ég hafði svo sem greinina mína í Journal of Intellectual Capital en hin greinin átti að vera ritrýnikaflinn í ritgerðinni. Ég hélt í einfeldni minni að ég þyrfti ekki að skila því sérstaklega, heldur einungis vísa til þess í sérstakri yfirlýsingu sem ég undirritaði vegna skilanna. Ekki var það svo heldur þurfti ég í einum grænum að útbúa þennan kafla sem sérstakt skjal og leiðrétta ýmislegt og samræma svo það gæti staðið eitt og sér. Þar sem þetta voru 62 síður, var þetta ekkert smá áhlaup að koma þessu saman. Þetta gekk allt saman og ég var kominn heim í Álfkonuhvarf í tíma til þess að skella mér í sturtu, pakka og fara með Stefáni út á völl. Ferðinni var heitið til Wichita í Kansas í Bandaríkjunum þar sem Stefán er að fara í fjögurra daga keilubúðir í háskólanum þar. Þegar við tékkuðum okkur inn náðum við ekki að fá sæti saman því vélin var smekkfull. Við fórum á SAGA lounge og höfðum það náðugt og ég bað um uppfærslu, en var ekki vongóður þar sem flugvélin var þéttsetin. Ég hafði samt heppnina með mér því það voru sex raðir fyrir Saga og aðeins sex farþegar þar svo ég fékk uppfærsluna og var heldur betur ánægður. Þetta var því mjög ljúf ferð og ég horfði á nokkrar bíómyndir og hafði það gott. Á flugvellinum í Minneapolis tók við hörku ferli við að komast á réttan stað og finna hliðið sem við áttum að fara. Þegar við vorum komnir út í vél og rétt sestir, var ákveðið að skipta um vél með tilheyrandi töfum og þegar þetta er skrifað er töfin að verða tveir tímar. Það verður því lokað á bílaleigunni þegar við komum til Wichita en vonandi opið á hótelinu.
Ég hafði sko aldeilis rangt fyrir mér og segir betur frá því í næstu færslu


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home