Á Spáni er gott að .....

Segir í kvæðinu sem Laddi söng forðum daga. Við Sigrún flugum með Express á miðvikudaginn síðasta til Alicante. Þar var Kiddi Bernburg mættur til að sækja okkur og keyrði hann okkur á La Laguna hótelið í Dona Peppe hverfinu, þar sem hann og Allý kona hans eru að selja hús og íbúðir fyrir Euromarina fyrirtækið. Við vorum þarna í þrjá daga og komum heim í nótt (aðfaranótt sunnudags). Við skoðuðum fullt af húsum og sáum að bæklingarnir segja ekki alltaf alla söguna eins og myndin hér til hliðar gefur til kynna. Það var ekkert hús svona eitt og sér. Við kynntumst íslenskum hjónum sem voru á sama hóteli og bíða eftir að fá síðustu mál lögum í raðhúsinu sínu og fengum við að skoða inni hjá þeim. Við náðum að skokka aðeins í hverfinu og til þess sanna hvað heimurinn er lítill, þá renndi lítill bíll að okkur á skokkinu og þá voru þarna komin Þórdís og Hilmar úr danshópnum til að hitta hin hjónin. Hvílík tilviljun.
Veðrið var frábært, sól og 30 stiga hiti fyrstu dagana en sólarminna í gær (laugardag) en samt yndislega heitt og gott. Ég fór á föstudeginum í golf með Kidda á Las Ramblas, þar sem þau búa. Gaman að sjá heimilið þeirra þarna úti og rifja upp að við Stefán spiluðum þarna golf fyrir sex árum. Þrátt fyrir alla golfkennsluna sem ég er búinn að fara í, þá gat ég nákvæmlega ekkert. Kiddi er fyrrverandi unglingameistari í íþróttinni og því aldeilis með á nótunum.
Við fórum í hörku göngutúr í gær og gengum rúmlega 10 km um hverfið til að finna aftur húsin sem við skoðuðum og var ansi heitt. Síðan var chillað við laugina fram að kvöldmat, tékkað út og Kiddi keyrði okkur út á völl og síðan tók við þægilegt flug þar sem ég náði að sofa stóran hluta leiðarinnar. Það voru ekki keypt nein hús í þessari ferð, en afar fróðlegt að sjá hvernig kaupin gerast á eyrinni þarna og ekki amalegt að eiga sér athvarf í góða veðrinu þarna.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home