sunnudagur, júní 24, 2007

Keilubúðir í Kansas (Wichita)


Við vöknuðum snemma að morgni, vorum nokkuð rykaðir en samt nokkuð brattir. Við tókum okkur til, kíktum í mollið og fengum okkur að borða og síðan var fundur með Joan Peterson, sem tjáði Stefáni að undanþágunefndin hefði hafnað beiðninni hans. Hún var samt mjög indæl og hafði spurt um hvort það væri nokkur leið fyrir Stefán, og þá kom í ljós að það er til próf sem heitir GED, og hægt er að taka víðs vegar um heiminn. Hún lét okkur fá útprentaðar upplýsingar og síðan náði hún að fá nýja kynnisferð fyrir okkur hálftíma seinna svo við náðum að klára allt sem ekki náðist daginn áður. Háskólinn í Wichita er á mjög skemmtilegu svæði sem er snyrtilegt, grasi gróið og meira að segja golfvöllur á skólalóðinni. Þarna er líka múrsteinskofi sem er merkilegur fyrir þær sakir að Pizza Hut var stofnað þar og fyrsti staðurinn þeirra. Öll aðstaða til fyrirmyndar og ég væri ekki hissa þótt Stefáni fyndist akkur að komast þarna að. Stefán fór síðan í keilubúðirnar og ég heim á hótel. Ég gekk aðeins um “gamla bæinn” í gær og þótti lítið til koma og þegar hitinn var kominn í 32 og sólin hátt á lofti, fannst mér nóg komið af röltinu þannig að ég kíktí svo á námskeiðið, það virðist vel að þessu staðið og Stefán ánægður með það sem komið er. Tíminn hérna er fljótur að líða því við förum af stað heim á morgun. Reyndar stoppum við í sólarhring í Minneapolis, en það gefur okkur allavega svigrúm ef NWA fer illa með okkur aftur.

4 Comments:

At mánudagur, 25 júní, 2007, Anonymous Nafnlaus said...

Enginn smá ferðasaga. Með opnum möguleika á brotlendingu allan tímann. En eitthvað sagði mér að þú hefðir haldið lífi, í ljósi þess að þú náðir að skrifa þetta. Gott að þið lifið.

 
At þriðjudagur, 26 júní, 2007, Blogger EggertC said...

Já, þetta var sko ekkert smá ferðalag. Ótrúlega mikið mál að komast á áfangastað, en ferðalagið til baka er búið að vera mikið auðveldara. Frábært að lifa.

 
At föstudagur, 29 júní, 2007, Anonymous Nafnlaus said...

Thetta minnir mig barasta a mynd sem var i TV her i Danaveldi ekki fyrir svo longu, thar sem Steve Martin er ad reyna ad komst heim fyrir Thakkargjorda hatidina. Flugid fellt nidur, enginn bilaleigubill og oll hotel fullboku, thannig ad han neidist til ad ferdast med ofurjakvædum John Candi sem fer mikid i taugarnar a pirrudum Steve Martin.
En vonani gengur heimferdin betur.

 
At sunnudagur, 01 júlí, 2007, Blogger EggertC said...

Já, þetta ferðalag var sko efni í bíómynd. Heimferðin gekk ósköp vel svo þetta fór allt vel að lokum.

 

Skrifa ummæli

<< Home