Enginn harðjaxl í New York
Ég fylgdi Sigrúnu til New York á miðvikudag því hún getur ekki ferðast ein þar sem hún er ennþá að jafna sig eftir axlaraðgerðina. Ekki tókst betur til en svo að í SAGA biðstofunni áður en ég fór, þá fannst mér eitthvað fast í einum jaxlinum mínum og þegar ég ætlaði að pikka það burt, þá gaf jaxlinn sig og ég hélt á bróðurpartinum og setti í vasann. Nú voru góð ráð dýr, því tannlæknirinn sem ég hef haft frá tólf ára aldri dó um daginn. Ég hringdi á stofuna til að finna hvort einhver væri til vara, og þar á bæ var verið að loka öllu en sá sem var á staðnum gat ekki litið á mig fyrr en á fimmtudag eftir viku. Þetta verður skrýtið!!!
Við vorum sótt á völlinn í NY og fórum á Palace hótelið á horninu á 50. og Madison. Sigrún setti nýtt met í að skipta um herbergi þótt hún væri handlama. Við náðum loks að koma okkur fyrir í þriðja herberginu á jafn mörgum klukkutímum. Síðan áttum við ágætis tíma í NY því Sigrún þurfti að sjá skrifstofu Glitnis sem verður formlega opnuð í september og síðan líta á staði sem henta til að halda upp á atburðinn. Sérstaklega var ég hrifinn af Time Warner byggingunni við Lincoln Center þar sem var skemmtilegur salur með frábæru útsýni. Við vorum í fylgd atburðaskipuleggjanda sem bókaði líka fyrir okkur veitingahús svo við fórum á fínan steikarstað og frægan ítalskan stað. Við fórum líka í góða göngutúra, versluðum og höfðum það gott.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home