föstudagur, júní 29, 2007

Dúndurfréttir og Sinfó


Fór með Önnu í gær á tónleikana í Höllinni þar sem Dúndurfréttir tóku höndum saman við Sinfóníu-hljómsveitina og fluttu Vegginn eftir Floyd. Frábært að það skuli vera hægt að fylla Höllina tvisvar með þessu efni. Ég hef heyrt þá flytja þetta frábærlega áður svo ég bjóst ekki við miklu með Sinfó í eftirdragi. Það kom á daginn að þetta var áhugavert að sjá en hljóðið í Höllinni er alveg hræðilegt og alltaf sama trikkið reynt, þ.e. að skrúfa upp hávaðann til að reyna að plata fólk. Þess vegna heyrðist lítið í Sinfóníuhljómsveitinni og þetta var hálf þvingað allt saman. Síðan var kostulegt í restina þegar fólk vildi uppklapp þá kom í ljós að Sinfóníuhljómsveitir láta ekki klappa sig upp !!!

2 Comments:

At laugardagur, 30 júní, 2007, Blogger Anna C said...

Takk fyrir mig, ég skemmti mér konunglega :)

 
At fimmtudagur, 02 ágúst, 2007, Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir okkur. Við skemmtum okkur vel.

 

Skrifa ummæli

<< Home