mánudagur, júlí 16, 2007

Sneiðmyndir

Þegar ég var í Glasgow náði ég loks að lesa skýrsluna frá sneiðmyndatökunni sem ég fór í um daginn. Ekki nóg með það, heldur fékk ég geisladisk með myndunum til að skoða. Niðurstaðan virðist vera mér hagstæð fyrst þeir ráðleggja í skýrslulok að ég líti til þeirra eftir fimm ár :-)

Skýrslan er í fimm þáttum og fyrsti hlutinn um brjótkassann þar sem 350 myndir lágu til grundvallar skoðun á lungum. Niðurstaða: I am pleased to report that your lungs appear entirely clear, with no suspicious nodules or fibrosis. Nokkuð gott að allt “virðist” í lagi. Næsti hlutinn er um hjartað þar sem 30 myndir lágu til grundvallar. Niðurstaða: The result of your HearScan is a Calcium Score of 67. Compared to other men of your age, this represents an above avarage risk for coronary artery disease. It would be worthwhile considering taking regular low-dose aspirin. You should also ensure that that your blood glucose and cholesterol are within normal limits. Ég fékk líka töflu yfir þessi gildi til að sjá hersu mikið yfir meðaltalinu ég er. Meðaltalið fyrir minn aldurshóp er 3-35 og næsta fyrir ofan er 36-150 þannig að þetta er ekki alvarlegt en samt umhugsunarvert. Ef ég næ að hægja á þessu ferli þá er td. meðaltalið fyrir 51-55 ára 15-109 svo ég er ekki langt frá. Þriðji hlutinn var um kviðarholið og þar voru 150 myndir teknar af hinum ýmsu líffærum s.s. lifur, gallblaðra, milta, innkirtlar, nýru, bris og æðar, auk blöðru og blöðruhálskirtils. Niðurstaðan: You have a 2mm calculus (stone) within the lower pole of the right kidney. Currently, this small stone is unlikely to give you symptoms, but if this stone passes into the right ureter, this could give rise to renal colic. Fortunately, there are no other calculi visible in your renal tract. All of the remaining organs in your abdomen and pelvis appear normal. Þar hafiði það. Steinn sem verður ekki til vandræða nema hann hugsi sér til hreyfings!!! Fjórði hlutinn var sýndar “virtual” ristilspeglun sem byggði á 800 myndum að lágmarki. Þessi skoðun var það sem ég var virkilega að sækjast eftir. Mér var brugðið þegar Óli Ó fór í ristilspeglun og það fannst meinsemd, sem sagði mér að maður ætti að láta skoða sig. Niðurstaðan hjá mér: I am pleased to report that your colon appears entirely normal, with no diverticuae or supicious polyps. Hvílíkur léttir !!! Síðasti hlutinn var svo um bein og liðamót þar sem hinar ýmsu myndir eru teknar. Niðurstaða. The results of your Bone Mineral Density Scan are a T Score of -0.70, a Z Score of 0.30 and an overall Density of 150.40 mg/cc. This is normal, indicating you do not have osteoporosis. You have minal degenerative (wear and tear) changes in your spine, especially in the lumbar region, which is whithin normal limits for your age. Otherwise, the bones appear normal. Sumsé, ég er að eldast !!! Nú er að vinna úr þessu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home