Fyrsti fuglinn

Eitt af því sem ég hef ákveðið er að læra golf mér til yndis og ánægjuauka. Ég hef farið kannski tvisvar á ári í golf í mörg ár, en aldrei getað neitt. Síðan hef ég farið með Stefáni að spila á völlum á orlofsstöðunum sem við höfum verið á. Þetta eru staðir eins og Hawaii, Aruba ofl. Frábærir vellir, en það er ekkert gaman að spila þarna nema maður kunni eitthvað fyrir sér. Ég hef því notið leiðsagnar í vetur og áfram í sumar við að slá en ekkert spilað. Kennarinn minn vildi að ég spilaði eitthvað svo ég fór í Urriðaholtið þar sem er æfingavöllur sem heitir því yndæla nafni “Ljúflingur”. Mér hefur gengið upp og niður og náði best að para eina holuna. Þegar ég kvartaði við kennarann í síðustu viku, þá fór hann með mig út á völlinn og ég spilaði eina par þrjú holu. Ég sló með drævernum rétt til hliðar við green-ið og chip-aði með Wedge-i beint ofan í. Sumsé fyrsti fuglinn minn staðreynd. Kennarinn spurði hvað ég væri að kvarta??? Þetta gæti varla verið betra svo við fórum aftur að slá !!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home