Annasöm vika að baki
Það var nóg að gera í vikunni sem leið. Ekki hvað síst vegna þess að ég fékk einhverja magapest á mánudeginum og þurfti að gefast upp á hlaupaæfingunni eftir rúman kílómeter í upphitun. Ekki nóg með það heldur sofnaði ég um níuleytið og svaf eins og steinn til morguns. Á þriðjudeginum sleppti ég ræktinni og einbeitti mér að fundum dagsins og svo kennslunni. Á miðvikudeginum var byrjað á morgunfundi hjá Glitni og svo endalausum fundum sem endaði með því að ég var með klukkutíma fyrirlestur um Frumtak og fjármögnun sprotafyrirtækja hjá Viðskiptasmiðju HR. Síðast en ekki síst þurfti ég að sæta því að bensinn var dreginn í burt í Borgartúninu því ég lagði nálægt vöruinnkeyrslu. Óttalega stíf viðbrögð en það var ekkert hægt að segja. Ég náði líka að ná í nýja bílinn minn og koma Pajeronum í tímareimaskiptingu því hann fer upp í nýja bílinn, auk þess að ná bensanum úr Vökuportinu svo það var heldur betur span á mér. Svo þurfti að pakka því ég fór til Glasgow á fimmtudaginn og var gestur MBM lögfræðistofunnar á verðlaunahátíð lögfræðitímarits. Það var ágætis veður í Glasgow og bara gaman að rölta um kunnuglegar slóðir, en gengisþróun vikunnar gerði það að verkum að allar hugleiðingar um verslun voru lagðar til hliðar. Hátíðin byrjaði sjö um kvöldið á Hilton hótelinu. Það var valinn hópur við borðið, þ.á.m. David Grahame frá LINC en að auki framkvæmdastjórar þriggja skoskra fjárfestingasjóða. MBM var tilnefnt til verðlauna og ekki spillti það fyrir kvöldinu að þeir unnu. Eftir að hátíðinni lauk náði ég aðeins að spjalla við David og Stuart, gestgjafa minn, og svo var auðvelt að taka lyftuna upp á 17 hæð og drífa sig í háttinn. Ég flaug svo til London daginn eftir og var svo kominn heim um fjögur leytið. Ég kom við í Bláa Lóninu á leiðinni í bæinn og skoðaði fundarsali þar því ég er með fund þar á miðvikudaginn. Þar sem vikan var búin lagði ég leið mína til tengdaföður míns á Eir og sátum við lengi að spjalli. Í morgun voru svo skokkaðir 22 km og þannig náð aðeins að bæta fyrir hlaupaleysi vikunnar.


1 Comments:
Va nog ad gera hja pabbanum. Hvernig er maginn?
Skrifa ummæli
<< Home