föstudagur, ágúst 15, 2008

Stolið frá Stefáni

Það voru leiðinleg tíðindi frá Stefáni í nótt því þegar hann kom að húsinu á Spáni í gærkvöldi, þá hafði einhver óprúttin náungi stolist inn í húsið og stolið tölvu, vegabréfi, iPod og bakpoka frá Stefáni. Þetta var ótrúlega skítt því það var ómögulegt að sjá hvernig þetta hafði gerst. Kerfið hafði farið af stað kvöldið áður svo maður er að ímynda sér að þetta hafi verið skipulagt og kannski gluggi tekinn úr lás kvöldið áður og svo farið inn daginn eftir. Maður veit ekki en það er klárt að þjófnaðir eins og þessi er algjör plága á Spáni.

Hins vegar má þakka fyrir að tjónið var ekki meira því að í fyrsta lagi meiddist enginn í þessu og svo hitt að Stefán kemst heim án vegabréfs og það sem er líka þakkarvert er að Stefán var með nýtt vegabréf svo að visað hans til USA var í gamla vegabréfinu, sem er hérna heima, þannig að Ameríkuferðin er ekki í uppnámi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home