Keilufréttir af Stefáni
Það var fyrsti keppnisdagurinn hans Stefáns í keilu á Heimsmeistaramóti Ungmenna sem fram fer í Orlando í Florida. Honum gekk vel í dag og var efstur af íslensku strákunum. Í heildarúrslitum var hann í 40. sæti á meðan liðsfélagar hans lentu í 51., 72., 95-97. sæti Alls kepptu 194 keppendur svo þetta hlýtur að teljast góður árangur.
Stefán á frí á morgun (sunnudag) en keppir í tvímenning á mánudag, og vonast hann eftir betri árangri því þá er olíuburður á brautunum sem honum hugnast betur.
ÁFRAM ÍSLAND
===========================
Epilogue
Ekki varð Stefáni að ósk sinni en félagar hans náðu bronsi í tvímenningnum. Að öðru leyti gekk ekki sem skyldi því Haffi varð aðeins nokkrum pinnum frá því að komast í úrslitakeppni einstaklinga og Stefán var óánægður með skorið sitt.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home