Heitir dagar í Hellabæ
Ég fór á miðvikudaginn af stað til Matera á Ítalíu. Ég flaug til Stansted og beið þar í fimm tíma og flaug svo áfram með Ryanair til Bari ásamt fleiri ráðstefnugestum sem voru í sömu erindum. Þegar þangað kom, biðu okkur bílar sem keyrðu okkur í klukkustundarakstur til Matera þar sem ég tékkaði mig inn á hótel San Domenico ásamt Rob Huggins sem ég þekki frá Glasgow þótt hann sé fluttur aftur á sitt heimasvæði í Wales. Ráðstefnan byrjaði svo kl. 9 daginn eftir. Það var gaman fyrir mig að vera þarna því ég hitti svo marga úr heimi þekkingarverðmæta. Ekki
spillti fyrir að Göran Roos var þarna líka ásamt Leif Edvinsson. Ég ákvað að fylgjast aðeins með því sem er að gerast í þekkingar-skýrslugerð þjóða og klasa auk þess sem ég hlustaði á kynningar á stjórnun þekkingarverðmæta í fyrirtækjum. Mér fannst gæðin á framlögðum greinum ekki mikil þótt auðvitað séu góðir bitar inn á milli. Aðal framsögur voru hjá Leif og Göran og var ég ekki svikinn af þeim. Þeir voru mjög góðir, Leif með spurningaleikinn sinn (quisics) og Göran með þekkingarverðmæti og nýsköpun. Það var vel hugsað um okkur á ráðstefnunni, góðar kaffiveitingar og hádegismatur. Hátíðarkvöldverður á fimmtudagskvöldið þar sem ég var svo heppinn að lenda á borði með Leif, Ian Russell frá SIAC og Lin frá Taiwan. Við Leif sátum lengi að spjalli og urðum samferða heim þar sem hann sýndi ótrúlega útsjónarsemi í að rata í þeim ranghölum sem bærinn er. Verður það einstök minning að eiga þessa ferð okkar um öngstrætin í myrkri og umsetnir hundum og köttum. Á föstudeginum var dagskráin meira helguð pallborðsumræðum og stefnumálum fyrir yfirvöld. Satt best að segja finnst mér þetta óttalegt bull og gafst ég oftar en ekki upp og labbaði fyrir hornið inn á hótelið mitt og gerði eitthvað annað. Þess vegna var ég vel upplagður í kveðjukokteilinn í gærkvöldi þar sem ég spjallaði við Sabine Bruggeman, en hún er í DBA21 í Henley og er að reyna að klára ritgerðina sína á þessu ári. Þrátt fyrir að vera Þjóðverji hefur hún búið síðustu 15 ár í Dubai utan tvö ár í Sviss. Þar sem við erum í sama námi hafði hún mikinn áhuga á að heyra frá síðustu metrunum í doktorsnáminu hjá mér. Kveðjukokteillinn var í nokkurs konar steingarði og flott hlaðborð og létt tónlist. Ég hafði vit á að hætta kl. 23 og halda í háttinn og átti það eftir að skila sér í morgun þegar farið var í skoðunarferð um bæinn.Ég kalla Matera hellabæ því bærinn er byggður utan á hella í gili þar sem steinninn er svo mjúkur að hægt er að grafa út híbýli. Þetta samspil hús og hella var sérkennilegt og klárt að ég myndi ekki vilja búa hér. Ekki bara út af húsunum heldur einnig vegna veðursins en það var 35 stiga hiti í gönguferðinni og þeir sem höfðu verið lengst í kveðjukokteilnum fengu sólsting og varð að keyra þá í bíl til baka. Þess vegna er deginum mest varið innan dyra. Vegna þess hvernig flug og verð á flugi er háttað ákvað ég að halda heim til Íslands á sunnudagskvöld sem þýðir nótt á Stansted og heim um kaffileytið á mánudag. Þannig að ég á heilan dag eftir í hitamollunni í Matera.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home