mánudagur, maí 26, 2008

Lífið er Lotterí

Godfried skólafélagi minn í Henley sendi mér póst í apríl þar sem hann minnti á samning sem við þrír skólafélagarnir gerðum eftir að hafa hlaupið Amsterdam maraþonið fyrir þremur árum. Í vímunni eftir hlaupið ákváðum við að útskrifast allir með doktorsgráðu árið 2008 og hlaupa New York maraþonið. Þar sem ég hef ekki hlaupið mikið síðan í lok september í fyrra þegar ég fór maraþon í Osló, þá hafði ég ekki mikinn áhuga á að rifja þetta upp og þóttist líka öruggur því þótt við Eyþór höfum verið að útskrifast þá hætti Godfried í náminu í fyrra. Síðan er það hitt að það er erfitt að komast í New York maraþonið og ef ekki er keypt sérstök hlaupaferð þá þarf maður að skrá sig í þátttökulotterí til að fá aðgang þar sem vinningslíkur eru ekki miklar, svo ég þóttist enn öruggari fyrir bragðið. Ég er engu að síður byrjaður að reyna að hlaupa og gengur ekki vel. Þess vegna gat ég ekki annað en brosað þegar ég fékk eftirfarandi texta í tölvupósti í síðustu viku:

“Congratulations! You have a confirmed spot in the ING New York City Marathon 2008. You’re in for the experience of a lifetime.

We are thrilled that you will be joining us on Sunday, November 2. New York Road Runners is celebrating its 50th anniversary this year, and your participation in the 39th running of the ING New York City Marathon helps us commemorate this special occasion.”

Sem sagt. Ég vann mér þátttökurétt í maraþoni. Hefði ekki verið nær að vinna peningalottó

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home