miðvikudagur, apríl 30, 2008

Mikið að gera á miðvikudegi

Á miðvikudeginum í síðustu viku var nóg að gera. Ég byrjaði hálf níu á morgunfundi hjá SI á vegum sprota, líftækni og upplýsingatæknisamtakanna. Þórólfur Árnason hjá SKÝRR talaði um nauðsyn þess að loka sölu og mæltist vel. Síðan fór ég með fulltrúum áðurnefndra samtaka til menntamálaráðherra þar sem við kynntum nýjan samstarfsvettvang ráðuneytis og hagsmunaaðila sem við köllum hátæknivettvang. Ég var þarna meira sem þögull fulltrúi upplýsingatækniiðnaðarins en gatið ekki stillt mig um að skjóta inn nokkrum orðum um mikilvægi þess að tengja menntun og atvinnulíf og að stjórnvöld gegndu þar mikilvægu hlutverki. Þá lá leiðin í HR þar sem ég var með kynningu á sjálfum mér og doktorsverkefninu mínu í 35 mínútur á hádegisverðarfundi viðskiptadeildar. Þetta var ekki auðvelt þar sem ég var að tala um rannsóknina mín á íslensku, en það hefur ekki gerst fyrr, auk þess sem þarna var mjög vel menntað fólk. Ég reyndi að hafa þetta á léttu nótunum og gat ekki fundið annað en að fólk hefði áhuga á þessu. Vafalaust hefur það átt von á fræðilegri fyrirlestri en það er bara ekki hægt á svona stuttum tíma að fara mjög nákvæmlega niður í rannsóknarefnið. Ég á nefnilega von á því að kenna þekkingarstjórnun í HR í haust og þess vegna var gott að kynnast þessu góða fólki sem er í viðskiptadeildinni. Síðan lá leið upp í GoPro þar sem við héldum aðalfund. Þar kynnti ég stefnumótun fyrirtækisins og þekkingarskýrslu, en frá því að ég kom í stjórn þarna hefur slík skýrsla fylgt hefðbundnum ársreikningi. Það eru góðir hlutir að gera í GoPro og spennandi að vera hluti af þeirri atburðarás. Þegar ég kom svo heim var Ásdís búin að sækja Thor, frænda hennar Sigrúnar, út á flugvöll og var hann hjá okkur í sólarhring. Það er alltaf gaman að fá Thor í heimsókn og það fer alltaf vel á með okkur. Þar sem Sigrún var í Brussel, þá hittust þau frændsystkin ekki að þessu sinni en vonandi nær Thor að stoppa lengur næst.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home