Gluggað í grjót
Í Frankfurt þurftum við að bíða eftir að getað tékkað inn en fundum frábæra hvíldarstóla sem gögnuðust okkur vel þennan rúmlega klukkutíma sem við biðum. Síðan var farið að borða og hitta svo hópinn. Flugið til Kairó gekk vel og var þægilegt. Það var tekið á móti okkur og farið á fínt hótel og var það með betri hótelrúmum sem ég hef sofið á. Dagskráin var að skoða Egypska safnið, sjá pýramídana í Giza og hofin þannig að Keops og Sfinxinn eru komnir á kortið hjá mér. Ég hélt að píramýdarnir væru sléttari en aðeins einn þeirra var sléttur efst. Við fórum ekki inn í pýramídana og veit ég ekki hvort mér á að finnast það miður. Ég fékk líka skýringu á hugtakinu Rosetta Stone, en það er grjót sem hafði að geyma texta á myndmáli, grísku og arabísku að ég held. Þessi steinn var lykillinn að því að ráða egypska myndletrið og allar sögurnar sem var að finna á öllu grjótinu sem hefur varðveist. Reyndar náði ég í pestina sem Sigrún er með svo þráðurinn hefur verið svolítið stuttur í þessum löngu skoðunarferðum, en vel þess virði að skrölta með. Það sem mér hefur þótt merkilegast er að skilja tilganginn með öllum þessum pýramídum, en það var til að tryggja velsæld konunganna í næsta lífi. Allt ævistarfið miðaði að því að tryggja hagsæld eftir dauðann. Þess vegna voru allir þessir bústaðir og fjársjóðir í pýramídunum. Efniviðurinn sem þeim þótti duga var grjótið, og ekki að furða því það er með ólíkindum hvað þetta hefur varðveist vel þessi rúmlega þrjúþúsund ár. Ekki síður smurðu líkin sem eru til sýnis og erfitt að ímynda sér aldurinn á þessu. Það var ekki laust við að mér fyndist nær að þeir hefðu einbeitt sér meira að núinu og hugsað minna um grjótið. Á mánudeginum var svo flogið til Luxor þar sem við sáum Karnak og Luxor hofin sem eru ekki grafhýsi. Þar sáust greinilega áhrif hinna ýmsu kynslóða sem höfðu merkt sér staðinn með mismunandi hætti. Mér þótti merkilegast að sjá steinnálarnar, eða obiliskana, sem þarna voru og ekki síður að sjá hvernig þeir höfðu reist þá við. Í Luxor var svo haldið í fljótabátinn sem verður heimili okkar næstu dagana og ágætt að byrja fyrsta daginn á siglingunni á því að sigla og horfa á landslagið því ég var búinn að fá mig fullsaddann af grjóti í bili.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home