Á toppi Table Mountain
Þegar við Sigrún komum út á völl í Delhi var tveggja tíma seinkun. Þar var endalaus biðröð að auki svo þetta tók allt langan tíma. Það var betri stofa sem við komumst inn á svo biðin var þolanleg. Við flugum með BA og vorum á skárra farrými, þó ekki væri það viðskipta. Þarna voru fáir svo við höfðum þennan hluta vélarinn fyrir okkur að mestu leyti svo ferðalagið var notalegt. Við náðum að sofa og horfa á bíómyndir og tíminn var nokkuð fljótur að líða. Við höfðum ætlað okkur að eyða deginum í London niður í bæ til að drepa tímann, en þar sem vélin var sein og allt tók tíma, gerðum við ekki mikið meir en að taka lestina niður í bæ, fara í eina skóbúð, borða á Planet Hollywood og svo út á völl aftur. Við flugum með South African Airways og var vélin pökkuð. Við Sigrún sátum saman í tveggja sæta röð svo það fór ágætlega um okkur. Við flugum yfir nótt svo nú reið á að ná að sofa, sem við og gerðum. Þegar kom til Cape Town tók á mót okkur glæsilegur flugvöllur. Töskurnar komu seint en það gerði ekki mikið til. Ég hafði beðið hótelið að sækja okkur og það beið okkar bílstjóri og fínn bíll. Bílstjórinn spurði hvaðan við værum og þegar lá fyrir að við vorum Íslendingar, þá sagðist hann hafa verið að sækja stjórnmálamann daginn áður vegna þingsetningarinnar. Þetta hefði verið hávaxin kona !!! Ekki gátum við alveg þekkt hver átti í hlut. Á leiðinni frá flugvellinum keyrðum við framhjá kofabyggðunum sem heimilislausir hafa reist sér og var hræðilegt á að líta. Samt var þetta ekki mikið öðruvísi en í Indlandi. Þegar kom á Westin Grand hótelið, þá voru nokkrir klukkutímar þar til herbergið okkar var tilbúið svo við drifum okkur út og tókum “rauða” strætóinn og fórum í skoðunarferð. Eftir að hafa ekið um borgina stukkum við af við kláfferjustöðina upp á Table Mountain og vorum svo heppin að hún var í gangi. Við fórum því upp á topp og sáum þar vítt til allra átta. Þarna uppi var veitingastaður og fengum við okkur að borða og nutum veðurblíðunnar. Engu að síður var komið rok og fólk var beðið að fara ekki í langar gönguferðir. Við drifum okkur því niður aftur með kláfnum og tókum eftir að ekki var farið með fólk lengur upp í fjallið. Við vorum því heppin að komast. Eftir skoðunarferðina fórum við á hótelið og núna var herbergið tilbúið og við náðum að skola af okkur ferðaskítinn og fríska okkur upp. Um kvöldið fórum við út á Waterfront svæðið og fengum okkur að borða á steikarstað. Það kom okkur á óvart að það var svo mikið rok um kvöldið að það var ekki hægt að sitja úti. Engu að síður gengum við um svæðið þarna og skoðuðum búðir og veitingahús. Síðan var farið að sofa og sofið út því við áttum að vera sótt á hádegi til að fara til Róberts og Áslaugar.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home