laugardagur, janúar 26, 2008

124 - 65

Þetta gætu verið úrslit í einhverri íþróttinni en svo er ekki. Ég kláraði vinnudaginn minn í gær og var þetta frekar leiðinlegur dagur. Það var fundur með starfsmanni sem á að segja upp, en Skotarnir eru með fáranlega vinnulöggjöf sem krefst þess að þú segir upp starfsmanni í þremur stigum þar sem fyrsta stigið er að senda honum bréf þar sem honum er tjáð að starf hans sé í hættu og að það verði fundur eftir tvo daga til að ræða málið og sé honum heimilt að hafa fulltrúa sinn með sér á þann fund. Síðan er það fundurinn sem var í gær, þegar starfsmaðurinn mætir og honum er skýrt frá forsendum þess að starfið sé í hættu og hvort hann hafi einhverjar hugmyndir um hvernig megi bjarga starfinu hans. Síðan þurfa að líða a.m.k. 24 tímar áður en hægt er að afhenda honum uppsagnarbréfið svo það líti út fyrir að tillögur starfsmannsins hafi fengið nákvæma umfjöllun. Þvílík hræsni!!! Það lá fyrir að starfsmanninum yrði sagt upp. Það má ekki bjóða honum að segja upp sjálfum því það er ”constructive dismissal” sem er bótaskylt. Sem sagt, allir umgangast málið eins og kettir kringum heitan graut og allir þurfa að passa sig svo þeir verði ekki bótaskyldir. Þú getur rétt ímyndað þér hvað þetta gerir móralnum á vinnustaðnum. Í stað þess að höggva strax á hnútinn er öllum haldið í heljargreipum. Tæknilega má ég ganga til hvers og eins starfsmanns og segja honum að ég ætli ekki að reka hann, en ég má ekki ganga til starfsmanns og segja honum að ég ætli að segja honum upp. Þvílíkt öfugsnúið. Ég held að það myndi fara um liðið ef ég tæki upp á þessu. En fundurinn gekk skv. forskrift en ég má ekki senda uppsagnarbréfið fyrr en á mánudag til að sýna fram á nákvæma skoðun. Vandamálið er að ég verð ekki á skrifstofunni á mánudag því við Sigrún förum á sunnudag til Indlands. Þess vegna þarf ég að redda þessu á einhvern annan hátt. Eftir hádegi í gær var svo símafundur með Amivox mönnum því ég var á fundi í Hillington á fimmtudag þar sem nýr tengiliður hjá nýsköpunarmiðstöðinni var kynntur og mér leist ekkert á manninn. Þess vegna var þessi símafundur. Ég endaði svo um fjögur leytið á skrifstofunni hjá Stephen til að ræða málin hjá EJS UK því hann þarf að leysa mig af í nokkrum málum. Þegar við vorum búnir um sex leytið gekk ég út í rokið og rigningarúðann og gekk alla leið niður í bæ þar sem ég verslaði í matinn. Ég ætlaði ekki í ræktina svo það var bara hressandi að ganga þennan rúmlega hálftíma. Um kvöldið náði ég að heyra frá krökkunum á MSN og síðan Sigrúnu á Skype. Eftir smá sjónvarpsgláp var mál að halda í háttinn en áður mældi ég blóðþrýstinn minn því það er aðal heilsuverkefnið næstu vikur að lækka blóðþrýstinginn og kólestrólið. Þar sem ég sat pollrólegur í stólnum kom í ljós að þrýstingurinn var 124/65 sem er með lægri tölum sem ég hef séð hjá sjálfum mér. Mér var ekki alveg sama svo ég mældi þrýstinginn aftur standandi og þá var hann 136/80 sem var nær lagi. Það væri nú saga til næsta bæjar að ég færi að hafa áhyggjur af of lágum þrýstingi !!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home