Að skilja fyrr en skellur
Þó ég telji mig upplýstan, þá er ekki alltaf að ég er tilbúinn að horfast í augu við staðreyndir. Þess vegna þarf ég að heyra hlutina frá öðrum til þess að taka mark á þeim. Ég fór í árlega heimsókn til hjartalæknisins míns fyrir jólaferðina og þar sem blóðþrýstingurinn minn var á öðru hundraðinu í neðri mörkum, þá lét hann mig fá lyf til að lækka þrýstinginn. Ég fór líka í blóðrannsókn og fékk niðurstöðuna á föstudaginn og það voru engin gleðitíðindi. Ég hafði nefnilega sent lækninum afrit af skýrslunni um sneiðmyndatökuna í Glasgow í sumar og þegar þetta var lagt saman var útkoman nokkuð skýr. Ég er með byrjun á kölkun í kransæðum og þá þýðir ekkert að vera með kólestról út af kortinu. Æskilegt gildi fyrir mig er minna en fjórir en ég er með sex. Síðan var þvagsýran í nýjum toppi en ég tel það sannað að hár blóðþrýstingur og há sýra auki til muna hættuna á nýrnasteinamyndun, en það er eitthvað sem ég óska ekki nokkurri manneskju. Þess vegna þarf ég núna að taka lyf sem sporna gegn kólestróli í blóði og að tvöfalda skammtinn af blóðþrýsingslyfjunum.
Hvað segir þetta mér? Að ég þurfi að hætta að syngja Stuðmannalagið ”Blind******” því þar er áráttunni best líst með viðlaginu ”Ég ætla að hætta að ****** á morgun”. Það þarf að byrja í dag og ég er byrjaður !!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home