Gleðileg Jól
Þá er komið að því að vera erlendis á aðfangadag í annað skipti á tuttugu árum. Það var árið 1987 sem við fórum áttunda desember til Flórida og vorum á strönd í góðum hita á jólum.
Núna erum við í Dubai og ætlum að halda út í eyðimörkina seinni partinn á morgun og eyða þar aðfangadagskvöldi í að leita að jólastjörnunni eins og vitringarnir þrír gerðu forðum. Við verðum ekki með gull, reykelsi og mirru, heldur sameinaða fjölskyldu og jólaskapið.
Mig langar að óska öllum þeim sem lesa þessa síðu, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Núna erum við í Dubai og ætlum að halda út í eyðimörkina seinni partinn á morgun og eyða þar aðfangadagskvöldi í að leita að jólastjörnunni eins og vitringarnir þrír gerðu forðum. Við verðum ekki með gull, reykelsi og mirru, heldur sameinaða fjölskyldu og jólaskapið.Mig langar að óska öllum þeim sem lesa þessa síðu, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.


3 Comments:
Bestu óskir um Gleðileg jól
Allir hér biðja að heilsa
Arent
kærar þakkir mig og mína og hafið það gott jólakveðjur helga og co
Gleðileg Jól og takk fyrir síðast.
Með bestu kveðju,
Styrmir I.B.
Skrifa ummæli
<< Home