Stormur setur strik
Jólaferð fjölskyldunnar var heldur betur metnaðarfull, enda tuttugu ár síðan við vorum erlendis á jólum. Ferðinni var heitið til Maldive eyja og síðan til Dubai. Fimm nætur á hvorum stað og síðan komið heim að kvöldi annars í jólum. Við ætluðum að hittast öll í London á sama klukkutímanum og bíða til kvölds eftir beinu flugi til Male. Okkur leist ekki á blikuna þegar það var gefin út stormviðvörun fyrir föstudaginn, sem var ferðadagurinn okkar en hugsuðum sem svo að þetta væri aldrei meira en þriggja tíma töf og það var sjö tíma gluggi fyrir flugið áfram. Þegar við vöknuðum var farið á netið og ljóst að þetta væri í alvarlegra máli. Raunin varð svo að við komumst ekki í loftið fyrr en átta um kvöldið og við misstum af vélinni til Male og því gist á Hilton á Heathrow. Anna og Ásdís þurftu því að fara einar af stað og áttu reyndar afskaplega þægilega ferð. Sigrún var búinn að fá sitt fólk í lið með sér til að redda nýju flugi, en það þýddi að við þurftum að fljúga daginn eftir til Munchen og taka vél með LTU þaðan. Stressið hélt áfram daginn eftir því það voru ekki nema tveir og hálfur tími milli fluga í Munchen og það var rúmlega klukkutíma seinkun hjá BA á Heathrow. Við þurftum því að þeytast gegnum Munchen völl og rétt náðum að tékka okkur inn. Þvílík hlaup !!!. Við sátum ekki saman, en Sigrún náði að skipta við einhvern þannig að hún og Stefán náðu að sitja saman, en ég var aftast í vélinni og sat hjá góðlegri eldri þýskri konu sem merkilega nokk talaði ágætis ensku. Ég náði að sofa í þrjá tíma þannig að ég var í sæmilegu standi þegar við komum í 30 stiga hitann á Male. Það var hálfgert rok og skýjað með skúrum. Við fórum í rúmlega klukkutíma siglingu til að komast til Rehti Ra. Það var smá alda og ekki laust við Sundhana fílinginn, fyrir þá sem þekkja þá sögu. Það var því feginn fjölskyldupartur sem komst loksins í jólafríið


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home