Tónlistarhelgi í London
Ég lenti um hádegisbil á föstudaginn á Gatwick og gekk beint út í rútu til að taka á móti Önnu á Heathrow. Ásdís var þegar komin og Sigrún og Stefán áttu að koma um kvöldið. Ferðin út á Heathrow gekk vel og ég þrammaði um gangana til að finna komuhliðið. Vélinni hennar Önnu seinkaði um hálftíma svo í endann vorum við klukkutíma seinna á ferð en ég ætlaði. Þegar við komum
á Paddington ætluðum við að taka leigubíl en það var svo löng röð að við skelltum okkur í neðanjarðarlestina og vorum eldsnögg niður á Oxford Circus og þaðan stutt labb upp á Sanderson hótelið. Þar hittum við Ásdísi og tékkuðum okkur inn. Þær systur fóru eitthvað að bralla en ég fór og keypti miða á Spamalot og ákvað að fara aftur, en við Stefán sáum þetta þegar hann fór í GED prófið. Við fengum frábær sæti og stelpurnar voru ekki sviknar af leikritinu og fannst það frábært. Fjölskyldan hittist síðan öll á hótelinu og var Sigrún komin í rúmið því hún var ennþá lasin eftir Kína/Rússlandsferðina. Á laugardeginum voru búðirnar teknar í nefið. Ég og börnin keyptum helling í HMV og síðan versluðu mæðgurnar sitt lítið af hverju. Á laugardagskvöldinu fékk ég Ásdísi og Önnu með mér á Blondie söngleikinn “Desperately seeking Susan” en Sigrún og Stefán fóru á bíó. Við feðginin vorum sammála um að gæðin á söngleiknum væri ekki mikil og minnti á uppfærslu framhaldsskóla og textinn ekki mikill að gæðum. Samt ágætis skemmtun. Á sunnudeginum var svo komið að hápunktinum, þ.e. Foo Figh
ters tónleikunum. Svo skemmtilega hittist á að ég fékk póst frá Róbert Melax um heimsókn til þeirra hjóna í Suður Afríku í febrúar um sexleytið og ég hringdi í hann og dreif hann og Áslaugu konu hans á tónleikana með okkur. Sigrún og þau hjónin voru á svipuðum stað í tónlistarsmekknum á meðan ég og börnin hoppuðum og sungum okkur inn í stemminguna. Dave Grohl er frábær!!! Það var síðan stuttur svefn sem beið því ég þurfti að vakna kl. 4:30 til að fara í flug

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home