fimmtudagur, nóvember 01, 2007

Viðtal í Fréttablaðinu


Ég fékk upphringingu frá Fréttablaðinu þar sem þeir voru að gera kálf um iðnað og byggðu á frétt um styrkveitingu úr Námsgagnasjóði SI. Ég var spurður út í þekkingarverðmæti og hvað þarna væri á ferðinni. Ég var í bílnum þegar viðtalið fór fram og svaraði eftir bestu getu, en það var kostulegt að sjá svo það sem blaðamaðurinn hafði eftir mér. Best þótti mér samt að Claessen var rétt skrifað en í fréttinni hét ég Einar!!! Blessunarlega var mér sendur textinn áður og endurskrifaði ég fréttina svo hún væri meira eins og ég hefði viljað segja.

4 Comments:

At fimmtudagur, 01 nóvember, 2007, Blogger Anna C said...

Hvar stóð Einar í greininni? Hvar var þessi mynd tekin?

Annars flott hjá þér... pabbi bara frægur!

 
At fimmtudagur, 01 nóvember, 2007, Blogger EggertC said...

Hvergi, því ég endurskrifaði þetta áður en það var prentað.

Myndin er tekin í Grasagarðinum í Laugardal.

Takk Anna mín.

 
At laugardagur, 10 nóvember, 2007, Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er glæsilegt! Gott að þú fékkst að lesa textann yfir hjá þeim, maður getur ímyndað sér hversu slæmur hann hefur verið, miðað við hvað linsan á myndavélinni er óhrein.

 
At mánudagur, 12 nóvember, 2007, Blogger EggertC said...

Já Helgi minn, það þarf að passa upp á þessa blaðamenn. Linsan var ekki óhrein, heldur hellirigndi og úr gosbrunninum líka !!!

 

Skrifa ummæli

<< Home