Stefán komst inn í Wichita !!!
Á fimmtudaginn bárust mér þær ánægjulegu fréttir, þar sem ég beið eftir töskunni minni á flugvellinum í Alicante, að Stefán hefði komist inn í Wichita State University. Þetta var aldeilis búið að vera spennandi því Stefán hafði lagt mikið á sig til að komast þangað. Þetta var ekki öruggt því það vantaði pínulítið upp á að hann næði viðbótarkröfum skólans umfram það sem venjulega er krafist. Niðurstaðan var sú að það var ekki látið brjóta á þessu og því getur hann hafið nám á vorönn og þarf að vera mættur til Wichita þann 10. janúar nk. TIL HAMINGJU Stefán minn. Þetta er frábært tækifæri fyrir þig.


2 Comments:
Til hamingju... ég er svo stolt af fjölskyldu okkar=klassafjölskylda!
Þetta var heldur betur sigur fyrir Stefán, því hann kemst inn í háskólann án þess að hafa íslenskt stúdentspróf, heldur er hann búinn að taka það ameríska.
Skrifa ummæli
<< Home