Tólfta þonið – Álögum aflétt
Í Osló var komið klukkan tvö að nóttu á hótelið og gott að komast í háttinn. Á laugardeginum var grenjandi rigning og aðeins 12 stiga hiti. Þar sem ég ætlaði að hlaupa maraþon daginn eftir og hafði ekki gert ráð fyrir að þurfa að klæða mig sérstaklega. Í tjaldinu þar sem númerunum var úthlutað var smá hlaupamarkaður og þar náði ég að kaupa þunnan Nike jakka, sem reyndist mér vel í hlaupinu. Sigrún þurfti að stússa mikið vegna vinnunnar en ég hélt mig mest á hótelinu og tók því rólega. Á sunnudeginum var milt veður, súld og smá skúrir öðru hvoru. Ég var með ósköp einfalda áætlun, þ.e. leggja af stað og komast í mark. Ég hafði lítið náð að hlaupa frá Reykjavíkurþoninu og var búinn að vera í vikuútlegu í Bretlandi svo ég bjóst ekki við miklu. Það var einmitt það sem gerðist. Ég byrjaði að gefa eftir strax í 15 km og eftir hálft var ég meira og minna að ganga og skokka til skiptis. Ég sá fljótt að fimm tímarnir voru staðreynd og þar sem ég ætlaði bara að klára var ég ekkert að ergja mig á þessu. Ég var reyndar orðinn svolítið óþolinmóður í restina að klára og reyndi að herða mig en fannst það ekki skila miklu. Þannig var 5:13 staðreynd en ég var búinn að klára Osló maraþonið sem ég þurfti að hætta við í fyrra þegar ég meiddist þegar ég var hálfnaður. Það var mikil hvatning að Lise Sund var mætt á staðinn þrátt fyrir að vera á hækjum vegna uppskurðar á hné og hún og maðurinn hennar hvöttu og voru til staðar þegar ég kláraði hlaupið. Eftir hlaupið hinkraði ég eftir Sigrúnu, sem gekk hálft með henni Hrefnu úr vinnunni hennar. Eftir að hafa spjallað var ljóst að Sigrún þurfti að sinna vinnunni svo eftir stutta sturtu fór ég með Lise og Ingve út að borða. Við fórum á TGI’s og þar pantaði ég stóra kók og stóran bjór og þurfti strax áfyllingu á kókið!!! Eftir stóran forrétt og stóran skammt af rifjum var ég loksins orðinn ég sjálfur aftur. Við settumst síðan á bar of fengum okkur einn kaldan og spjölluðum. Það var gaman að hitta Lise aftur og spjalla. Þetta var ánægjulegur dagur.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home