laugardagur, september 22, 2007

Rokleikur í golfi

Það hljóp á snærið hjá mér fimmtudaginn 13. sept sl. Þegar Óskar Skúlason, áður kenndur við TM Software, bauð mér að spila með sér Mýrina á GKG. Þetta eru 9 holur og ekki kallað Mýrin að ástæðulausu. Ég byrjaði vel, enda hafði ég verið í tíma um morguninn, og spilaði fyrstu sex holurnar eins og engill. Óskar var ekki langt á eftir en ég náði með herkjum að halda pallinum þar til á sjöundu holunni. Þá var eins og allt færi úr skorðum hjá mér. Það hvorki gekk né rak og ekki bætti úr skák að það var mjög hvasst þennan dag og fór kólnandi. Þegar ég leit á hitamælinn sem fylgir skordótinu mínu, þá sýndi það 4.2 gráður, sem þykir meira að segja kalt í ísskápnum þínum!!! Ég plægði grimmt og sló meira að segja inn á ranga flöt á áttundu holunni. Ég fór a.m.k. tvisvar í vatnið og meira til. Á níundu kórónaðist vitleysan þegar ég sló annað högg inn á flötina en yfirsló og lenti í sandgryfjunni og komst með herkjum upp úr aftur. Þetta varð því í heildina bræðrabylta, því ég var svo mörgum höggum á eftir Óskari á síðustu þremur að okkur kom saman um að jafntefli hefði verið að ræða og ekki hvað síst að við þyrftum að finna okkur betri völl og veður til að halda leiknum áfram. Engu að síður var frábært að komast þó þetta og ekki spillti fyrir góður félagsskapur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home