Heimsókn frá útlöndum
Það var aldeilis fjör hjá mér um síðustu helgi Það var hópur sem hefur farið í gegnum prógramið í Henley á leið til Íslands að stofna formleg tengslasamtök. Á fimmtudaginn komu Godfried og Inge frá Hollandi. Eins og ég hafði lofað þegar ég heimsótti þau í vor, þá fór ég út á völl að sækja þau og lánaði þeim bílinn minn. Um kvöldið fórum við á Holtið ásamt öðrum hollenskum hjónum sem voru mætt í sama tilgangi. Við fengum frábæran mat og allir ánægðir. Á föstudeginum byrjaði ég rólega hjá Elke en svo færðist fjör í leikinn og um fjögur fór ég út á völl að sækja tvo síðustu þátttakendurna svo þær næðu í móttökuna hjá Nýherja sem var hálf sex. Þetta reyndist óttalegt stress því það varð klukkutíma og fjörutíu mínútna seinkun á vélinni og var ég búinn að tímasetja mig miðað við það. Svo allt í einu var komunni flýtt um tuttugu mínútur og ég þá orðinn of seinn. Þar sem Sigrún hafði verið á jeppanum og hún fór reyndar til UK þennan dag, reyndist jeppinn bensínlítill svo þetta varð allt mjög spennandi. Þau sem ég var að sækja voru Sarah Dixon úr hóp 18 (ég er í 19) og svo Ashok Jashapara úr hópi 1. Ashok þessi er höfundur kennslubókarinnr í þekkingarstjórnun sem ég hef kennt undanfarin ár. Þegar ég kom út á völl var vélin nýlent svo ég var ekki seinn. Sarah kom fljótt en ekkert bólaði á Ashok. Þegar ég var orðinn verulega órólegur kom allt í einu brosandi Indverji á rafknúnum þríhjólastól. Mér varð öllum lokið því það hafði ekkert verið minnst á þetta. Hann reyndist ekki lamaður, heldur gekk allur skakkur svo hann átti erfitt með gang svo þetta fór betur en á horfðist. Við keyrðum fyrst á bensínstöð og síðan beint í Nýherja, þar sem var vel veitt og var Þórður forstjóri með kynningu bæði um Ísland og fyrirtækið. Þarna hitti ég Matthildi, fyrrum matstýru í Tölvumiðlun, var gaman að sjá hvað hún er búin að ná sér vel eftir mikla erfiðleika í einkalífi og bað hún um bestu kveðjur til fjölskyldunnar. Eftir móttökuna var haldið í Sjávarkjallarann þar sem vel var veitt í mat og drykk, enda var reikningurinn per mann rúmlega 13 þús. og útlendingarnir því vel tuskaðir í íslensku verðlagi á fyrsta kvöldi.
Á laugardagsmorgninum var haldið í rútu til Þingvalla þar sem við fengum myndasýningu í fræðslumiðstöðinni og leiðsögn um staðinn. Við tókum okkur stöðu á Lögbergi og stofnuðum formlega DBA tengslanetið líkt og þegar Alþingi var stofnað forðum daga. Þá var haldið í þjónustumiðstöðina þar sem við Eyþór grilluðum lamb ofan í hópinn og tókst vel. Þá var það Gullfoss og Geysir, þá Kerið og hestaleiga rétt utan við Hveragerði. Ég fór ekki á hestbak, heldur hallaði mér í rútunni því ég var orðinn heldur framlágur. Þegar við komum í bæinn aftur var stutt stopp því við áttum borð pantað á Einari Ben þannig að ég rétt náði að komast heim og skipta um föt. Maturinn á staðnum var allt í lagi en tók allt of langan tíma, sérstaklega eftirrétturinn og var hópurinn orðinn ansi brúnaþungur í restina. Við náðum ekki að koma hópnum við eitt borð svo ég, Eyþór, Godfried og Inge lentum saman á borði. Inge var lasin svo hún var orðin mjög þreytt og áður en eftirrétturinn kom, þá afsökuðu þau hjón sig og fóru skyndilega. Þegar ég var svo á leiðinni heim fékk ég SMS frá Godfried þar sem hann lýsti því að það hefði liðið yfir Inge í stiganum á leiðinni út og heilmikið mál, en hún hefði fljótt komist til meðvitundar og enni liði betur. Hópurinn hafði ekki hugmynd um þetta. Þar með var formlegri dagskrá lokið en ég hafði ákveðið að hitta Godfried og Inge á sunnudeginum og sýna þeim borgina. Af augljósum ástæðum ákváðu þau hjón að sofa út og við hittumst rétt eftir hádegi. Við fórum á pylsubarinn, Þjóðmenningarhúsið, sögusýninguna í Perlunni og enduðum í Bláa Lóninu, sem þeim fannst auðvitað frábært. Þegar komið var í bæinn ætluðum við að borða á Ítalíu en þar var allt fullt svo við enduðum á Caruso og fengum frábæran mat. Þetta var góður dagur, frábært veður og alveg ótrúlegt að hitta svona vel á. Það voru því ánægðir útlendingar sem héldu heim snemma á mánudagsmorgun.


4 Comments:
Eggert minn framlágur skv. Blöndal kveðja, Ásta
P.S mikið er búið að vera skemmtilegt hjá ykkur
Hafa skal það sem sannara reynist :-)
Já, það er fjör !!!
æðislegt... þið þurfið að taka mig útlendinginn í svona íslenskt ferðalag
Það er lítið mál Anna mín því nú kann ég þetta allt saman.
Skrifa ummæli
<< Home