Á slóðum forfeðra
Á föstudag héldum við Sigrún til Kaupmannahafnar og tókum þar bílaleigubíl og keyrðum til Helsingör. Reyndar byrjaði ferðin í algjöru stressi því ég hélt að vélin færi 14:15 en þegar við vorum á leiðinni út um útidyrnar á Álfkonuhvarfinu leit ég á miðann og sá að brottför var klukkutíma fyrr. Ég fékk sting í magann og við keyrðum í loftinu út á völl og vorum mætt hálftíma fyrir brottför, aðeins til að fá að vita af 40 mínútna seinkun. Ég hefði geta sparað mér stressið og hraðann, en við vorum aðeins 32 mínútur frá því að við lögðum af stað út um dyrnar. Ég er nokkuð viss um að þetta er besti tíminn minn hingað til og óvíst hvort ég hef nokkurn áhuga á að slá hann.

Við fengum uppfærslu og áttum þægilega ferð til Köben þar sem ég fékk sjálfskiptan Volvo S1 með leðursætum hjá Hertz. Aðal spenningurinn var samt hjá mér að prófa nýja Tom Tom-inn sem ég keypti í Glasgow í síðustu ferð. Ég valdi röddina hennar Jane, setti inn heimilisfangið á hótelinu og átti Jane í engum vandræðum að koma okkur á áfangastað. Rétt við hótelið var Claessens Vej og ákvað ég að heimsækja hann daginn eftir. Við gistum á hótel Marienlyst, sem var þokkalegt, afar vel staðsett, alveg við ströndina og fallegt útsýni yfir hafið til Svíþjóðar. Við borðuðum kvöldmat á hótelinu og fórum snemma að sofa því ég hafði vaknað hálf fimm til að keyra Ásdísi út á völl og vel þreyttur.
Á laugardeginum fórum við í morgunmat á hótelinu, tékkuðum okkur út og fyrsta stopp var Claessens Vej, þar sem Sigrún tók af mér myndir. Þá var haldið í bæinn á Strandgötuna þar sem Claessenske Palæ er númer 93.
Þetta myndarlega hús var reist af Jean Jacob Claessen 1791-3, þannig að við frændurnir verðum líklega jafnlengi að byggja J. Ásta systir talaði um Jeans Palæ en ég hafði ekki upplýsingar um það svo það þarf að bíða seinni tíma. Við löbbuðum síðan í bænum og skoðuðum í búðir í alveg frábæru veðri og drifum okkur síðan í ferjuna til Helsingborg því ferðinni var heitið til Helmsjövik í fimmtugsafmæli Göran Roos.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home