föstudagur, ágúst 03, 2007

Til eyja um Verslunarmannahelgina


Það er búið að vera frábært að hafa alla fjölskylduna heima núna síðustu vikurnar. Við höfum samt ekki getað farið í frí eins og við gerðum í fyrra og helgast það af því að dagskrá okkar rekst á í allar áttir. Okkur fannst þetta hálf skítt og því var ákveðið í skyndi í gær að halda til eyja um Verslunarmannahelgina, ekki þjóðhátíð í Eyjum heldur til Bretlandseyja og fara saman á Prince tónleika í London í O2 höllinni. Sigrún, Ásdís og Stefán fóru á föstudag og ég og Anna morguninn eftir. Tónleikarnir voru svo um kvöldið og við komum svo heim á sunnudagskvöldið. Stutt en hnitmiðað fjölskyldufrí. Prinsinn var fínn á tónleikunum. Hann hefði mátt vera örlátari á gömlu góðu lögin en þetta var hörkuskemmtun. Við gistum á Sanderson hótelinu sem er liðlega hundrað metra frá Oxford stræti. Þetta hótel er eitt af mest hipp og kúl hótelum í London. Börnin mín elskuðu það, en ég myndi ekki vera þarna á eigin vegum. Ég er greinilega ekki hipp og kúl!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home