sunnudagur, ágúst 26, 2007

Frá Eyrabakka til Glasgow


Þegar komið var frá Köben á þriðjudagskvöld beið í vikunni þó nokkur dagskrá með endalausum fundahöldum, tannlæknatíma og hlaupum. Þessari dagskrá lauk með því að ég keyrði til Eyrabakka á föstudagskvöldið til að snæða í Rauða húsinu með fulltrúum Norrænu upplýsingatæknifyrirtækjasamtakanna sem voru komnir hingað til lands að þinga um "Open source" hugbúnað. Við vorum sjö í allt og áttum þarna ágæta kvöldstund. Ég þekkti Norsku fulltrúana frá fyrri verkefnum svo þetta var ósköp auðvelt allt saman og maturinn gerði sitt til að gera þetta eftirminnilegt fyrir útlendingana.

Ég vaknaði svo heldur snemma næsta morgun, þar sem við Sigrún fylgdum Önnu út á flugvöll, en hún var að fara aftur í skólann sinn í Vínarborg. Það var ósköp gott að hafa hana hjá okkur í sumar og söknum við hennar strax, en ferðin hennar gekk vel svo það var allt í góðu. Síðan var það að undirbúa sjálfan mig í Glasgow ferð í morgun. Ég ætla mér meira en bara að funda í þessari ferð því nú var golfsettið tekið með og ég píndi Stephen til að fara með mér 9 holur. Annars varð í samferða Snorra í EJS UK í vélinni í morgun og hann og Inga kona hans skutluðu mér niður í bæ á Carlton George sem ég held til í ferðum mínum þessa stundina. Annars liggur fyrir heilmikil dagskrá fyrir utan golfið í dag, því á mánudag er ég að úrskurða í fomlegu klögumáli starfsmanns hjá EJS UK og síðan fundað með Formedix mönnum. Á þriðjudag er IP seminar sem Caroline vinkona mín heldur, fundur með englum hjá LINC og svo Masterclass í VIA þekkingarverðmætaverkefninu, samskonar og ég var ræðumaður á í síðasta mánuði. Sem sagt nóg að gera.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home