sunnudagur, ágúst 19, 2007

Hlaupið til góðs


Í gær var Reykjavíkurmaraþon Glitnis í hreint frábæru veðri. Ég var svo sem í engu standi til þess að hlaupa maraþon en þar sem bankinn greiðir 500 kr. fyrir hvern hlaupinn kílómeter, þá ákvað ég að safna sem mestu fyrir MS félagið og láta mig tímann engu máli skipta. Ég hafði sett mér þá strategíu að hlaupa á rétt rúmlega sex mínútum hvern kílómeter og sjá hvað ég kæmist. Þetta gekk eins og í sögu allt þar til ég beygði upp Kringlumýrarbrautina. Þrátt fyrir að ganga efsta partinn og fá mér Snickers bita, þá missti ég tvær mínútur þegar ég var kominn í 21.1. Síðan fór ég að ganga brekkur upp úr 23km og í 27km var ég farinn að ganga meira. Gekk brekkuna upp úr Fossvogsdalnum og síðan brekkuna áður en komið er í Nauthólsvík. Þar hafði ég lagt út kók og marsipanbrauð í poka og breytti hlaupinu í lautarferð og labbaði út á Ægissíðu. Þar byrjaði ég að skokka og ganga til skiptis og hélt því alveg þar til komið var í mark á 4.53.40. Ekki mitt besta maraþon en engu að síður bæting um eina klukkustund og sjö mínútur frá síðasta maraþoni í London.

4 Comments:

At sunnudagur, 19 ágúst, 2007, Blogger Anna C said...

skiptir ekki máli með tímann... bara flott hjá þér að hlaupa maraþon til styrktar svona góðu málefni.

 
At sunnudagur, 19 ágúst, 2007, Blogger EggertC said...

Takk Anna mín.

 
At sunnudagur, 19 ágúst, 2007, Blogger Dis said...

Til hamingju

 
At þriðjudagur, 04 september, 2007, Blogger EggertC said...

Takk Ásdís mín

 

Skrifa ummæli

<< Home