þriðjudagur, ágúst 14, 2007

Göran Roos fimmtugur



Ferjan var 20 mínútur til Helsingborg og þar settum við stefnuna á Örljunga. Ég lenti í smá basli með að finna Koch Johan hótelið í Helmsjövik því Jane í Tom Tominum hafði það ekki á skrá. Við lentum í rangri götu svo ég þurfti að taka fram Map Pointið og finna aðra götu rétt hjá sem Jane þekkti og gat lóðsað okkur. Rétt í þann mund sem Jane hafði áttað sig og við á réttri leið, þá kom þvílíkt úrhelli að ég hef sjaldan lent í öðru eins. Þegar við komum að hótelinu þá ætlað maður varla að hafa sig út úr bílnum þessi tvö skref inn í móttökuna. Göran var þar mættur líka til að skila af sér eldri hjónum svo við náðum að heilsa aðeins afmælisbarninu. Hótelið var ósköp sveitó, eða Eddulegt, en allt í lagi.
Veislan var fín, þ.e. smóking og svoleiðis, og voru 43 gestir mættir. Johan bróðir Görans var veislustjóri og bauð alla velkomna, sagði allar ræður bannaðar nema í undantekningartilfellum og svo var sunginn afmælissöngurinn. Síðan bauð Göran öllum að gjöra svo vel að njóta þess sem fram yrði borið og að hann hefði sjálfur veitt hirtina sem voru í aðalrétt, að vínið væri sérvalið af honum og að ostarnir væru innfluttir frá Frakklandi. Síðan skálaði hann við gesti. Þá var ég kynntur til sögunnar og sagðist ég þurfa að taka til máls en vera fljótur. Ég byrjaði á að óska afmælisbarninu til hamingju með afmælið þótt það væri ekki í raun fyrr en í september, þannig að við værum að taka forskot á sæluna. Síðan að ég hefði lent í vandræðum með að finna gjöf handa honum. Þar sem sameiginlegt áhugamál okkar væru óefnisleg verðmæti hefði ég ákveðið að finna eitthvað táknrænt og ákveðið að hafa það efnislegt og úr íslensku bergi. Hraunið væri undirstaðan og nýjasta bergið til að móta landslagið. Síðan sagði ég frá vörðunum á Íslandi og hvernig vegfarendur hefðu hlaðið vörðurnar og bætt við þær þegar framhjá þeim væri farið. Þannig væri framlag afmælisbarnsins til fagsins líkt og steinar í vörðum sem leiðbeindu vegfarendum á leið um landslag þekkingarverðmætanna. Síðan afhenti ég honum gripinn sem Kiddi í Tímadjásn hafði útbúið fyrir mig. Ég fékk afar góð viðbrögð við ræðunni og gjöfinni og var nokkuð ljóst að ég hafði hitt vel í mark. Maturinn í veislunni var frábær og þegar borðhaldi var lokið þá var slegið upp balli með diskóteki. Eitthvað hafði spurst út að við Sigrún værum dansarar og þegar fréttist að Sigrún væri ófær um að dansa þá kom ein konan í hópnum til mín og sagði mig geta dansað við hana í staðinn, sem ég og gerði. Ég fór úr veislunni um hálf þrjú og voru þá gestir eitthvað farnir að tínast inn á herbergin.
Það er rétt að geta þess að Leif Edvinsson var þarna með sinni konum, en hann er aðal nafnið í Skandinavíu í faginu. Við höfum hist oft á ráðstefnum og gaman að hitta hann aftur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home