Kaflaskil og Köben
Í gær, mánudag, lagði ég fyrir sumarpróf í Þekkingarstjórnun í Háskólanum. Þetta verður væntanlega síðasta prófið sem ég legg fyrir í bili, því ég hef ákveðið að gera hlé á kennslustörfum næsta vetur og einbeita mér að því að skrifa greinar byggðar á doktorsrannsókninni minni, á meðan hún er sæmilega ný. Ég var því mættur út í Odda uppúr níu og leit til með nemendum en enginn þeirra hafði neitt að spyrja og ekki heldur þegar ég mætti aftur um hálftólf leytið. Þá tók við vinnufundur í GoPro því við Ólafur fórum með kaffivélinni til Köben og tilgangurinn að hitta mann í dag, sem við og gerðum og ég því kominn snemma út á flugvöll til að blogga.
Ég gisti á hótel Gentofte, sem er frekar Eddulegt en allt í lagi. Í það minnsta var frítt internet sem var kærkomið í gærkvöldi, enda náði ég að tala bæði við Ásdísi og Sigrúnu. Hafandi tekið ákvörðun um að hætta kennslu þótti mér svolítið skondið að fá póst í gær frá Ingjaldi Hannibalss. í gær þar sem hann sagði mér frá því að hann hefði verið valinn deildarforseti og væri því að leita að mönnum til að kenna fyrir sig og spurði hvort ég gæti kennt Utanríkisverslun. Ég varð því miður að neita þessu góða boði. Þær eru undarlegar sumar tímasetningar í þessu lífi!!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home