Fyrsti hringurinn
Þótt ég hafi verið reglulega í golfkennslu frá því í vetur hef ég aldrei spilað heilan 18 holu golfhring. Ég hef að baki þó nokkra 9 holu hringi, sérstaklega á Ljúflingnum. Það var því sérstök tilhlökkun þegar Jói Unnsteinss. bauð mér að spila með sér á Strandavelli á Hellu síðasta sunnudag. Hann ætlaði að vera í bústað um helgina og sagðist spila seinni part dags. Hann bað mig að hafa samband við sig fyrir hádegi til ákveða tíma, en samt ekki of snemma því hann ætlaði að sofa út. Ég hringdi því ekki fyrr en 11:35 og þegar Jói kom í símann var hann svolítið skrýtinn í röddinni og viðurkenndi að hann hefði steingleymt mér og ætti rástíma eftir klukkutíma eða 12:40 og spurði hvort ég myndi ekki ná !!!!!.
Ég stökk því í golfgallann og æddi út í jeppa og brunaði austur og náði að renna inn á Strandavöll tveimur mínútum fyrir rástímann og rétt náði að reima golfskóna áður en ég sló fyrsta högg. Var alveg makalaust að ég skyldi ekki fara á taugum á þessu stressi. Hringurinn gekk bara nokkuð vel. Það var ein sprengja upp á 11 högg en annars mikið af fimmum og sexum. Ég náði að para 11. holuna og það voru líka nokkrir skollar með í för. Ég endaði þetta á 119 höggum og Jói reiknaði út að ég hefði náð 32 punktum. Þetta var frábær skemmtun og ég á örugglega eftir að bæta mig um leið og ég næ einhverri leikæfingu.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home