Prófað í London
Við feðgarnir héldum af stað til London í gær (mánudag) svo Stefán gæti tekið svokallað forpróf til að meta stöðuna áður en GED prófið er tekið í heild sinni. Þetta GED er “High School Equivalency “ próf sem er aðgöngumiði að háskólum í USA. Forprófið var rúmir fjórir tímar og Stefán náði öllum þáttum til þess að geta staðist prófið en því miður ekki nógu hátt fyrir kröfurnar sem gerðar eru í Wichita. Það munar ekki miklu svo nú þarf Stefán heldur betur að spýta í lófana því við förum aftur út á fimmtudaginn 20. og hann tekur alvöru útgáfuna að prófunum þann 21. og þann 24. Spennandi tímar. Annars var þetta mjög snögg ferð því við erum á heimleið núna (þriðjudagskvöld) svo ferðin er rétt rúmlega sólarhringur.


1 Comments:
Til hamingju... tad munar litlu, nu er bara ad taka restina i gegn og rusta profinu :)
Skrifa ummæli
<< Home