Frábær endir á helgi í London
Við Stefán vorum að lesa á laugardeginum en um kvöldið fórum við að borða á argentínska steikarstaðnum Gaucho og fengum hreint frábæran mat. Síðan fórum við í keilu á eftir. Við spiluðum tvo leiki og tapaði ég naumlega fyrsta leiknum á meðan Stefán var að hitna, en svo átti ég ekki séns. Það er ekki að ástæðulausu að Stefán er í landsliðinu!!! Á sunnudeginum hélt Stefán áfram að lesa en við náðum samt að fara á bíómynd sem heitir því frábæra nafni “Run Fatboy run” um mann í engu formi sem ákveður að hlaupa maraþon. Þetta var þema sem ég átti auðvelt með að skilja!!! Á mánudeginum var svo komið að kveðjustund hjá okkur feðgum en við vorum samferða að prófstaðnum hans Stefáns en ég tók leigubíl þaðan út á City flugvöllinn, sem ég var að nota í fyrsta skipti og flaug til Glasgow. Þetta er lítill flugvöllur og tekur rétt 20 mín með leigubíl og allt svo auðvelt sökum þess hvað þetta er smátt í sniðum. Það er ljóst að ég mun reyna að nota þennan völl frekar en skrímslið á Heathrow. Þegar ég kom til Glasgow heyrði ég í Stefáni og hafði hann náð öllum prófunum, en svo kom síðar í ljós að í skriflega prófinu vantaði örlítið upp á meðaltalið þótt hann næði lágmarki hvers fags, en hann er samt kominn með GED prófið. Til hamingju með þetta Stefán minn.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home