Skápur á Scala
Á föstudeginum var haldið út á Keflavíkurflugvöll með Sigrúnu því ferðinni var heitið til Mílanó í boði Landsbankans. Við hittum fyrir á vellinum fullt af fólki sem við könnuðust við og vorum í þriðju og síðustu vél sem var frá BMI þannig að ég kannaðist vel við gripinn enda flýg ég oft með þeim innan UK. Þegar komið var til Mílanó var tékkað inn á afar virðulegt fimm stjörnu hótel og fór vel um okkur. Við komuna voru okkur afhentir miðar á ballettinn Don Kíkóti á Scala, sem við og nýttum, en þegar komið var í hið virta óperuhús runnu á okkur tvær grímur. Miðinn vísaði okkur upp á fjórðu hæð í stúku númer 11 í sæti þrjú og fjögur. Þetta hefði verið gott og vel nema fyrir þær sakir að aðeins var hægt að sjá sviðið úr sæti eitt og tvö með því að teygja sig fram, en sæti þrjú til fimm sáu aðeins stúkurnar hinum megin í salnum. Þegar sýningin hófst stóð ég á fætur og teygði mig fram yfir manninn sem sat í sætinu fyrir framan mig og horfði þannig á fyrsta þátt verksins, en að þeim 12 mínútum loknum, gáfum við Sigrún hvort öðru þögult merki og héldum á braut. Þetta var ekki bjóðandi. Það er ekki hægt að hlusta á ballett !!! Við héldum því út í kvöldið og bogagöngin við Dómkirkjuna og þar fundum indælan veitingastað og nutum okkar í hvívetna. Það var samt ekki laust við samviskubit yfir að hafa hlaupist á brott frá sýningunni, en það lagaðist fljótt því það birtust hver hjónin á fætur öðrum sem voru sest á veitingastaðina í kringum okkur í sömu erindagjörðum. Eftir matinn fórum við að rölta og hittum Gústa, Auði, Björgvin og Öddu, sem voru líka búin að fá nóg. Við enduðum kvöldið á því að fara á Four Seasons hótelið þar sem bankinn var með standandi kvöldmat og drykki og þar gafst tækifæri til að tala við marga sem ég þekkti í ferðinni.
Á laugardeginum var kynning á starfsemi Landsbankans kl. 11 og síðan fórum við Sigrún í rútu niður að skrifstofu Landsbankans í Mílanó, sem er einkar vel staðsett á efstu hæð í húsi nálægt Dómkirkjunni. Þarna voru svalir þar sem voru veitingar og gott næði til að spjalla. Við höfðum bókað okkur í skoðunarferð kl. 14 en hættum við þegar við gengum framhjá Dómkirkjunni og sáum að bankinn hafði leigt lyftuna upp á þak og fórum sjálf og sátum þar dágóða stund og nutum veðurblíðunnar og útsýnisins. Þegar aftur var niður komið fengum við okkur sæti á veitingastað við torgið og hlustuðum á tónleika sem þar voru. Lokst drifum við okkur á hótelið til að gera okkur klár fyrir kvöldið. Ég settist reyndar fyrst á barinn með Óla Werners og fleirum og fékk mér nokkra bjóra og spjall og rifjuðum við Óli upp góða stund í ferðinni til Zurich á síðasta ári þegar við fengum okkur sushi. Annars var hátíðarkvöldverðurinn í kastalagarði og afar flottur en ég var ekki í miklu stuði og héldum við heim eftir borðhaldið og fórum að sofa. Ég var því vel settur á sunnudeginum þegar haldið var heim, þrátt fyrir að ég hefði greinilega fengið einhverja flensu því ég steinlá á mánudeginum í hita og beinverkjum.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home